Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Það varð að samkomulagi milli allra þingflokka að láta það hafa forgang í þingstörfum fyrir jól að afgreiða tekjuöflunarfrv. sem hafa verið til umræðu í þessari hv. deild undanfarna daga. Síðan stóðum við frammi fyrir því hvort koma ætti saman milli jóla og nýárs og afgreiða fjárlög, 3. umr. og atkvæðagreiðslu, en hv. fjvn. hefur nú lokið sínum störfum.
Það varð samdóma niðurstaða allra þingflokka að þingmenn kysu frekar að eiga tímann milli jóla og nýárs til annarra verka og með fjölskyldum sínum en koma frekar saman fyrstu dagana í janúar til að afgreiða 3. umr. fjárlaga og greiða um þau atkvæði.
Þetta samkomulag hefur í för með sér að nauðsynlegt er að afgreiða frv. um greiðsluheimildir ríkissjóðs á fyrstu dögum næsta árs og það frv. sem hér hefur verið lagt fram er tæknileg útfærsla sem helgast af því samkomulagi þingflokka að afgreiða fjárlagafrv. frekar á fyrstu dögum næsta árs en milli jóla og nýárs.
Í 1. gr. frv. er kveðið á um greiðsluheimildir til loka janúarmánaðar. Ástæðan er sú að t.d. launagreiðslur eru greiddar í upphafi mánaðar fyrir mánuðinn allan og þess vegna nauðsynlegt að orða greinina með þessum hætti. Sama gildir um aðrar greinar. Sú sem snýr að útgáfu spariskírteina ríkisins helgast af því að það geti verið nauðsynlegt að hafa heimild strax í upphafi ársins, á fyrstu dögunum, til að gefa út spariskírteini af þessari upphæð þó að þau séu ekki öll seld á þeim dögum. Á sama hátt er í síðustu grein frv. kveðið á um heimild til lántöku til að mæta greiðsluhalla ríkissjóðs á árinu 1988 og reyndar einnig að hluta til á árinu 1987. Ástæðan fyrir því að öll sú upphæð er höfð í þessari grein er að það kann að opnast möguleiki á allra fyrstu dögum ársins að taka hagstætt lán á erlendum mörkuðum til að standa straum af þessari greiðslu og þá fannst mönnum rétt að hafa upphæðina alla inni. Það er ekki þar með sagt að hún verði notuð á þessum tíma því að það er tíminn fram í mars sem menn hafa til að ljúka þessu verki, en ef opnast á fyrstu dögum janúarmánaðar möguleiki til hagstæðrar lántöku var talið rétt að hafa lögformlegan grundvöll til að geta framkvæmt hana.
Ég vænti þess að þetta frv. fái greiðan gang í gegnum þessa hv. deild, enda er það til komið vegna góðs samkomulags þingflokka um afgreiðslu mála fyrir jól og á fyrstu dögum á nýju ári.
Ég mælist til þess, virðulegi forseti, að þessu frv. verði síðan vísað til fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umræðu.