Frsm. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til laga um bráðabirgðagreiðslur úr ríkissjóði og heimildir til lántöku á árinu 1989 og fleira sem nauðsynlegt er að samþykkja vegna þess að fjárlög verða fyrirsjáanlega ekki samþykkt fyrr en eftir áramót. Þetta hefur gerst áður. Í framhaldi af því samkomulagi sem gert var á dögunum milli stjórnar og stjórnarandstöðu fylgir það að óhjákvæmilegt er að samþykkja frv. eins og hér um ræðir. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess.
Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn.