Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. Ég gæti tekið undir það sem hv. síðasti ræðumaður sagði en vek á því athygli að hér var talsvert fjaðrafok í dag þegar tók að líða á daginn út af brtt. sem hann, ég og hv. þm. Júlíus Sólnes fluttum við 6. gr. Samþykkt þeirrar tillögu hefði þýtt að ákvæði þau sem tekin eru upp í þá grein varðandi lán til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra félaga mundi ná einnig til annarra félaga en hlutafélaga, þar á meðal til samvinnuhreyfingarinnar og annarra félaga.
Menn voru á rökstólum og fengu hvorki meira né minna en þann sem er nú sjálfsagt einna klókastur okkar alþingismanna í framtalsmálum, bókhaldsmálum og kannski fjármálum, sjálfan sjútvrh. til að búa til nýja tillögu. Hafði hann m.a. samráð við löggiltan endurskoðanda, sem ég reyndar gat ekki náð í þar sem hann var fjarverandi. Ég efast þó ekki um að þær skýringar séu réttar að þarna er auðvitað ekki um sama ákvæðið að ræða og það sem gilti fyrir hlutafélögin, en það er þó fagnaðarefni að eitt skuli yfir alla eiga að ganga með þessari brtt. Auðvitað eru heimildirnar allt aðrar og rýmri í þessari grein og kannski er engin vanþörf á því að þær séu það þegar alla á að beita ofríki í skattamálum og jafnvel að hundelta.
Ég get því væntanlega fallist á að þessi grein komi þarna inn en það er alveg ljóst að vegna okkar tillagna um að þetta gilti fyrir alla byrjuðu menn að hlusta á hvað væri verið að gera. Það er allt í lagi að þetta gilti fyrir hlutafélög einvörðungu en þegar átti að koma nær hjartanu varð náttúrlega að breyta öllum textanum og hafa hann rýmilegri.