Vörugjald
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ég er að sjálfsögðu ánægður yfir hverju því skrefi sem næst til þess að létta af einhverjum sköttum en ég vil á hinn bóginn benda á að það eru fleiri framleiðslugreinar en húsgagna- og innréttingaiðnaðurinn sem þurfa á innfluttum vörum að halda til síns rekstrar og tillaga meiri hl. tekur ekki til þeirra. Það er því ekki aðeins að skemmra sé gengið í tíma heldur gerir tillaga meiri hl. beinlínis upp á milli framleiðslunnar í landinu.