Jólakveðjur í Ed.
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd þingdeildarmanna þakka hæstv. forseta hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka honum góða og vinsamlega fundarstjórn það sem af er þessu þingi og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
    Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki vil ég þakka lipurt og gott samstarf að vanda, ekki síst í hefðbundnum önnum fyrir þinghlé. Þeim og fjölskyldum þeirra vil ég einnig óska gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Svo vona ég að við hittumst öll heil og endurnærð á næsta ári og bið hv. þingdeildarmenn að rísa úr sætum og taka undir orð mín. --- [Þingmenn risu úr sætum.]