Afturköllun og upptaka tillagna
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Matthías Á. Mathiesen:
    Herra forseti. Ég vildi aðeins mega taka undir með hv. 5. þm. Reykv. þegar hann þakkar forseta fyrir þá vinnu sem hann hefur lagt í það að leiðrétta það sem gerðist í gær.
    Ég tel að það sem hér hefur verið gert sé til fyrirmyndar hjá þeim sem sitja í forsetastól á Alþingi.