Skattskylda innlánsstofnana
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað frv. sem var breytt allmikið í Ed. og mælir meiri hl. með að það verði samþykkt eins og Ed. afgreiddi það.
    Stefán Valgeirsson er samþykkur þessu áliti.
    Undir nál. rita Ragnar Arnalds, Guðmundur G. Þórarinsson, Árni Gunnarsson, Ingi Björn Albertsson, Kristín Halldórsdóttir og Páll Pétursson.