Skattskylda innlánsstofnana
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Kristinn Pétursson:
    Hæstv. forseti. Ég vildi vekja athygli á og taka það fram að forseti úrskurðaði mjög rökrétt í deilumáli frá því í gær. En hér er einnig um að ræða deilumál og ég óska þess að þetta mál verði ekki látið fara frá deildinni fyrr en ljóst er að þetta sé ekki í bága við stjórnarskrá lýðveldisins varðandi þá jafnréttisreglu sem alltaf hefur verið talið að fælist í henni.