Forseti (Kjartan Jóhannsson):
Nú er komið að lokum síðasta fundar þessarar hv. deildar fyrir jólahlé. Ég vil þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir mjög ánægjulegt og gott samstarf sem hefur greitt fyrir störfum í deildinni og ekki hefur síst reynt á það nú hin síðustu dægrin. Fyrir það góða samstarf er ég mjög þakklátur.
Ég óska hv. þingdeildarmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Einnig óska ég skrifstofustjóra og starfsfólki öllu gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári um leið og ég þakka þeim ánægjulegt samstarf og fyrirgreiðslu alla sem gjarnan er unnin við mjög erfiðar aðstæður og sem auðvitað hefur ekki síst reynt á þessa seinustu daga og nætur.
Þeim hv. þingdeildarmönnum sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar, og reyndar öllum þingdeildarmönnum hvort sem þeir fara um langan veg eða skamman, og góðrar heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.