Jólakveðjur í Nd.
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Albert Guðmundsson:
    Hæstv. forseti. Fyrir okkar hönd, alþingismanna, þakka ég hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir okkur og fjölskyldum okkar til handa. Ég þakka honum sanngjarna og ég vil leyfa mér að undirstrika réttláta fundarstjórn og góða forustu um þingstörfin. Fyrir hönd okkar allra óska ég honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
    Þá vil ég einnig þakka skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis öllu vel unnin störf og óska því og fjölskyldum þess gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og leyfi mér að vænta þess að við megum öll hittast heil til starfa á ný að loknu þinghaldi.
    Ég vil biðja hv. alþm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum.