Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi, kjörbréf 1. varamanns Samtaka um jafnrétti og félagshyggju, Péturs Þórarinssonar, sem tæki sæti 6. þm. Norðurl. e. Stefáns Valgeirssonar. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.