Norrænn þróunarsjóður
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um norrænan þróunarsjóð sem er á þskj. 273. Frv. þetta er flutt í framhaldi af þáltill. sem samþykkt var í Sþ. nú fyrir jólin um heimild fyrir ríkisstjórnina að fullgilda Norðurlandasamning frá 3. nóv. 1988 um stofnun norræns þróunarsjóðs.
    Í framsöguræðu minni fyrir þeirri till. í Sþ. rakti ég aðdragandann að stofnun sjóðsins, en hugmyndin mun upphaflega hafa komið fram á þingi Norðurlandaráðs árið 1984. Samningurinn og samþykktir fyrir sjóðinn voru síðan byggðar á tillögum norrænu ráðherranefndarinnar sem samþykktar voru á þingi Norðurlandaráðs í Osló í mars í fyrra. Samningurinn og samþykktir fyrir sjóðinn fylgja sem fskj. með þessu frv.
    Markmiðið með stofnun sjóðsins er að örva félagslegar og efnahagslegar framfarir í þróunarlöndum. Sjóðurinn skal einbeita sér að fátækustu löndunum og veita lán sem eru með svipuðum kjörum og Alþjóðaframfarastofnunin, IDA, sem er systurstofnun Alþjóðabankans í Washington, veitir fátækum löndum. Þessi lán IDA eru til langs tíma og vaxtalaus að kalla. Þau voru lengst af frá árinu 1961 til 50 ára og vaxtalaus en með allt að hálfs prósents árlegu lántökugjaldi. Nú eru þessi lán til 35 ára eða til 40 ára til allra fátækustu landanna og án vaxta, afborganalaus fyrstu 10 árin yfirleitt.
    Það er fyrst og fremst verkefni Norræna þróunarsjóðsins að lána til þessara landa og til verkefna þar sem norrænir hagsmunir eru í húfi af hálfu verktaka eða annarra verkseljenda og aðrar lánastofnanir, eins og t.d. Norræni fjárfestingarbankinn, lána einnig til framkvæmdanna á venjulegum kjörum. Þetta eru eins konar viðbótarlán við vildarkjörum.
    Með þessum hætti verður unnt að hleypa af stokkunum verðugum og nauðsynlegum verkefnum sem e.t.v. mundu ekki standast ávöxtunarkröfur venjulegra lánastofnana. Auk þess opnast Norðurlöndunum með þessu leið til að keppa við aðrar iðnaðarþjóðir sem margar hafa við hliðina á sínum venjulegu framkvæmdalánastofnunum stofnanir eða fyrirkomulag ,,mjúkra lána`` eins og þetta er stundum nefnt.
    Ég tel það mikilvægt að þessi sjóður tengist Norræna fjárfestingarbankanum og Norræna verkefnaútflutningssjóðnum. Með tilkomu þessa þróunarsjóðs aukast líkurnar á því að norræn fyrirtæki fái verkefni í þróunarlöndum sem byggjast á samstarfi þessara norrænu stofnana.
    Stofnfé hins nýja sjóðs er 100 millj. sérstakra dráttarréttinda sem greiða skal á fimm árum. Þar í er hlutur Íslands um 55,9 millj. kr. eða um 11,2 millj. kr. á ári og er gert ráð fyrir þeirri fjárveitingu í fjárlagafrv. því sem nú er til meðferðar.
    Ég bind vonir við að þessi sjóður geti sérstaklega greitt fyrir því að íslenskir aðilar fái verkefni í þróunarlöndum þar sem það er einatt forsenda þess að slík verk fáist að þeim fylgi möguleikar til þess að þróunaraðstoð og ódýrt lánsfé fylgi frá

verktökulandinu. Möguleikar Íslendinga hafa því verið næsta takmarkaðir á þessu sviði en með samstarfi við fyrirtæki á Norðurlöndum opnast með tilkomu sjóðsins nýir möguleikar fyrir íslensk ráðgjafar- og verktakafyrirtæki.
    Aðsetur sjóðsins verður í skrifstofu Norræna fjárfestingarbankans í Helsingfors, en lagafrv. sem hér liggur fyrir hv. Ed. er flutt til að tryggja sjóðnum fullnægjandi heimildir vegna hugsanlegrar starfsemi hans hér á landi.
    Í fyrsta lagi er í 2. gr. ákvæði um að sjóðurinn skuli vera undanþeginn greiðsluhöftum og stefnumarkandi lánaráðstöfunum sem komið gætu í veg fyrir eða torveldað starfsemi hans eða girt fyrir að hann geti staðið við skuldbindingar sínar. Með einföldum orðum talað er hann undanþeginn ákvæðum laga um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála að svo miklu leyti sem slíkar reglur hér á landi kynnu að hamla starfsemi hans ef sjóðsstjórnin ákvæði að reka einhverja starfsemi á Íslandi.
    Í öðru lagi er í 3. og 4. gr. frv. ákvæði þess efnis að sjóðurinn sé undanþeginn opinberum gjöldum hér á landi.
    Í þriðja lagi eru svo ákvæði um gildistöku laganna í 5. gr. og er hún þar tengd gildistöku Norðurlandasamnings um sjóðinn, en eins og ég nefndi í upphafi máls míns, hæstv. forseti, hefur hv. sameinað Alþingi þegar samþykkt þál. sem heimilar ríkisstjórninni að fullgilda samninginn.
    Hæstv. forseti. Ég legg áherslu á að þetta mál nái sem fyrst fram að ganga og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. fjh.- og viðskn.