Erfðalög
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegi forseti. Ég kem einungis upp til að lýsa stuðningi við þær breytingar sem frv. gerir ráð fyrir. Mér sýnast flestar breytingarnar vera til mikilla bóta og þá sérstaklega það að eftirlifandi maki skuli nú einn hafa erfðarétt en ekki deila honum með foreldrum eins og núverandi lög gera ráð fyrir. Þá finnst mér mjög til bóta að festa í lögum að réttarstaða langlífari maka verði bætt og þá með þeim hætti sem þarna er gert ráð fyrir.
    En ég segi eins og síðasti ræðumaður að ég á sæti í hv. allshn. þar sem þetta mál kemur til nánari umfjöllunar og við munum eflaust fara vel yfir þetta mál. Ég vonast svo sannarlega eftir því að það verði afgreitt á þessu þingi. Ég tel þetta mjög brýnar breytingar.