Friðun hreindýra
Miðvikudaginn 04. janúar 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Hér er á ferð ágætismálefni og sýnist vera hið þarfasta mál. Það er vissulega mjög mikilvægt að hafa eftirlit með stofnstærð hreindýra svo og annarra villtra dýra. Á því byggist markviss stofnstærðarstjórnun þar sem þarf að taka mið af mörgum þáttum, ekki síst þeim þætti hvað varðar þol landsins. Mjög mikilvægt er að mat á stofnstærð og stofnstærðarstjórnun sé unnin af sérfróðum og óháðum aðilum. Hér er eins og áður var getið gert ráð fyrir að ráðinn verði umsjónarmaður með hreindýrum sem verði starfsmaður Náttúrufræðistofnunar. Það er rétt fyrirkomulag við þær aðstæður sem nú eru í þessum málum.
    Ég fagna jákvæðum ummælum hæstv. menntmrh. um umhverfismálaráðuneyti og staðhæfingum hans um að þetta mál eigi heima þar. Það get ég sannarlega tekið undir og vil í þessu sambandi vísa til þáltill. um umhverfismálaráðuneyti sem flutt er af þingflokki Kvennalistans. Þar er einmitt gert ráð fyrir því að innan lífríkisdeildar, sem þar er fyrirhuguð, verði stofnun sem hafi með að gera allt eftirlit og stjórnun á stofnum slíkra viltra landdýra.
    Mig langar að vitna, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur í c-lið, undir lífríkisdeild: ,,Spendýr, fuglar og önnur landdýr. Mat á og eftirlit með stofnstærðum dýra, t.d. rjúpu, ref og hreindýrum, og tillögur um aðferðir við stjórnun stofnstærða ef talin er þörf á að fjölga t.d. æðarfugli, fækka t.d. rottum eða vernda ákveðnar dýrategundir eins og örninn.
    Enginn einn aðili hefur nú þetta verksvið, en það er að hluta til unnið af dýrafræðideild Náttúrufræðistofnunar, Hafrannsóknastofnun sér um hvali og seli, menntmrn. (fuglafriðunarnefnd og hreindýrafulltrúi)`` --- eins og áður var getið reyndar --- ,,veiðistjóraembætti Búnaðarfélagsins og hjá meindýraeyðum sveitarfélaganna.``
    Það stendur einnig í þessari þáltill. í kafla sem varðar framkvæmd þeirra skipulagsbreytinga sem við leggjum til, með leyfi forseta:
    ,,Rannsóknastarfsemi Náttúrufræðistofnunar flyst öll undir umhverfisráðuneyti (safnið yrði áfram undir menntmrn.) en skiptist þar á milli deilda, 1c, 1d og 2a.
    Deild sjávarspendýra hjá Hafrannsóknastofnun og veiðistjóraembættið sameinast dýrafræðideild Náttúrufræðistofnunar undir deild 1c í hinu nýja ráðuneyti og þangað fara líka hreindýraeftirlit og starfsemi fuglafriðunarnefndar.``
    Þetta er aðeins til að minna á þær tillögur sem þegar liggja fyrir á þinginu og nauðsynlegt er að hafa hliðsjón af þegar ákvarðanir verða teknar um umhverfismálaráðuneyti sem vissulega er löngu orðið brýnt mál.
    Það er eitt sem ég vildi vekja athygli á í sambandi við þetta frv. að öðru leyti en því að ég er fullkomlega sammála flestu sem þar stendur og við tökum undir það kvennalistakonur. Það er nafnið á frv. Ég tel að nafnið á frv. sé rangt. Það gerir nefnilega alls ekki ráð fyrir því að hreindýr séu

friðuð. Væru hreindýr friðuð mætti alls ekki skipta sér neitt af þeim en náttúran látin ein um stofnstærðarstjórnun. Þá fjölgaði þeim í góðæri, ætu upp gróður til tjóns og hríðféllu svo í harðærum. Merking orðsins friðun meðal náttúruverndarsinna og umhverfisverndarsinna þýðir að láta í friði þannig að náttúran ein sér um friðunina. Orðið ,,verndun``, eins og hæstv. ráðherra reyndar beitti sjálfur í lok síns máls, þýðir hins vegar að hlúa að, hafa eftirlit með og grípa inn í þróun mála til verndunar.
    Þetta frv. er í raun frv. um verndun hreindýra. Það er gert ráð fyrir því að fylgst sé með stofninum og honum stjórnað skynsamlega. Það væri því eðlilegra að frv. héti: Frumvarp til laga um verndun hreindýra og hreindýraeftirlit --- eða að það héldi því nafni sem það bar þegar það kom frá þeirri nefnd sem samdi það: ,,Lög um hreindýr og hreindýraveiðar.``
    Rétt málnotkun er mjög mikilvæg til að auka skilning fólks og sannarlega veitir ekki af því hvað umhverfismálin varðar.