Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Það er út af fyrir sig tilgangslítið að eyða tíma í langar umræður um það mál sem hér er á dagskrá. Þessi bráðabirgðalög verða staðfest svo fremi menn hafa ekki skipt um skoðun í ráðrúmi hátíðisdaganna. Þar með fellst meiri hl. alþm. á það að stjórnvöld geti einhliða ákveðið þak á almenn laun og sagt fyrir um það hvenær segja megi upp samningum sem samningsaðilar hafa þó ekki einu sinni fengið að fara eftir. Það er svo sem ekki í fyrsta skiptið sem launafólk er beitt valdi af þessu tagi og ævinlega undir því yfirskini að þjóðarhagur sé ella í voða. Sé hins vegar rætt um nauðsyn þess að lögfesta lágmark launatekna í þjóðfélaginu til þess að tryggja öllum sómasamlega afkomu og framfærslueyri, þá er samningsrétturinn dreginn fram af andmælendum og klæddur í búning heilagleikans. Þá er ekki hlustað á þau rök að hagur lágtekjufólksins sé í voða.
Það virðist sem sagt alltaf hægt að tryggja meirihlutafylgi við það að halda launatöxtum niðri, en ógerningur, hingað til a.m.k., að fá skilning nægilega margra á því að allir eigi rétt á lágmarkstekjum sem dugi til mannsæmandi lífs. Afstaða kvennalistakvenna til þessara bráðabirgðalaga hefur frá upphafi verið ljós. Við getum ekki fallist á launafrystingu og afnám samningsréttar sem réttmætan lið í lausn á vanda atvinnulífsins sem er að stærstum hluta fólginn í óhóflegum fjármagnskostnaði, svo og þróun gengis og verðlags á erlendum mörkuðum.
Hér í Nd. stóðu fulltrúar allra þingflokka stjórnarandstöðu í fjh.- og viðskn. sameiginlega að tillögum til breytinga á frv. sem fólu í sér afnám launafrystingar og banns við uppsögn samninga. Það voru sár vonbrigði að sú samstaða skyldi ekki ná til allra sem sitja í viðkomandi þingflokkum. Ég leyfi mér ekki að efast um einlægni þeirra sem ráðstöfuðu atkvæði sínu þannig að þessum lögum yrði bjargað í höfn, en rök þeirra get ég ekki fallist á. Þau virtust byggð á því að ríkisstjórnina mætti ekki fella. Þjóðarhagur ylti á því að gefa henni frið til sinna verka, ella yrði upplausnarástand í þjóðfélaginu. Þessi afstaða hlýtur að byggjast á trú á þessa ríkisstjórn og getu hennar til þess að ráða fram úr vanda efnahags- og atvinnulífsins. Hingað til höfum við þó ekki séð neitt það til þessarar ríkisstjórnar sem réttlætt geti slíka trú. Helstu úrræði hennar hafa falist í því að frysta launataxta. Hún hefur hins vegar ekki treyst sér til þess að frysta verðlag þar sem það má hækka vegna sannanlegra hækkana á erlendum aðföngum. Þetta eru rök ríkisstjórnar jafnréttis og félagshyggju. Launafólk má ekki fá laun sín hækkuð vegna sannanlegra kostnaðarhækkana, en ríkisstofnanir og viðskiptaaðilar geta borið fyrir sig sannanlegar kostnaðarhækkanir. Þannig er forgangsröðin hjá ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju sem finnst sæmandi að halda launafólki í skrúfstykki launafrystingar og hækka um leið tekjuskatta og gjöld ríkisstofnana og verðlag í landinu með hækkun óbeinna skatta eins og vörugjalds, allt saman aðgerðir sem koma verst og harðast niður á almennu
launafólki. Mig undrar að nokkrum sem ber sérstaklega hag launafólks og heimilanna fyrir brjósti geti fundist ástæða til að verja slíka ríkisstjórn og jafnvel styðja hana. Og ég hlýt að vísa á bug öllu tali um ábyrgðarleysi í þessu sambandi.
Afstaða kvennalistakvenna til tekjuöflunarfrumvarpa ríkisstjórnarinnar var í fullu samræmi við aðstæður. Við erum engir sérstakir skattaandstæðingar og teljum eðlilegt og sjálfsagt að bæði fólk og fyrirtæki greiði skatta til samfélagsins. Það verður hins vegar að miðast við getu og aðstæður. Og við teljum það beinlínis ósæmilegt að hækka skatta á launafólki um leið og því er bannað að taka umsamdar launahækkanir, hvað þá heldur að semja um aðrar. Afstaða okkar var því sú að við samþykktum þær tekjuöflunarleiðir sem okkur virtist sannanlegt að skertu ekki kjör almenns launafólks né snertu afkomu heimilanna. Og ég verð að segja að mér er ómögulegt að skilja þau rök að menn sjái sig tilneydda til að styðja þvílíkar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir upplausn í þjóðfélaginu. Það verði fyrir alla muni að verja þessa ríkisstjórn falli hvað sem það kostar.
Þessi ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju hefur enn bætt um betur eða hitt þó heldur með gengisfellingu sem hlýtur að skila sér mjög fljótt í hækkun verðlags og enn rýrari kaupmætti en kemur þó að harla litlu gagni fyrir atvinnulífið. Þessi aðgerð virðist algjörlega út í loftið. Það er löngu viðurkennt af flestum öðrum en aðstandendum ríkisstjórnarinnar að gengið hefur verið kolrangt skráð mjög lengi og það er einmitt ein af orsökunum fyrir slæmri stöðu útflutnings- og samkeppnisgreinanna og hins vegar fyrir gróða og góðæri hjá innflutningsgreinunum. Þetta misræmi er óhjákvæmilegt að leiðrétta þó það sé sannarlega hvorki vandalaust né einfalt og þarf vitaskuld að mæta því með hliðarráðstöfunum sem fyrst og fremst verða að miða að því að taka áfallið af almennu launafólki og heimilunum. Öðruvísi má það ekki gerast. Það sem nú hefur hins vegar verið gert er skelfing máttleysislegt og ómarkvisst og leysir engan vanda, enda eru boðaðar frekari aðgerðir. Eins og hv. síðasti ræðumaður kom inn á hefur hæstv. forsrh. nú þegar kynnt lauslega hugmyndir sem
eru til umræðu, en ég hygg að ég brjóti engan trúnað þótt ég segi að við kvennalistakonur leituðum nokkuð í þessum plöggum og í þessum hugmyndum að einhverju sem horfa kynni til bóta fyrir almennt launafólk og þar sem kæmi fram einhver umhyggja þessarar ríkisstjórnar sem kennir sig við jafnrétti og félagshyggju fyrir því fólki sem maður hefði haldið að ætti skjól hjá slíkri ríkisstjórn. Þær tillögur eða hugmyndir fundum við ekki í þessum plöggum.
Nú ber hins vegar svo við að ráðherrum virðist ekki liggja alveg jafnmikið á og á haustdögum þegar stjórnarmyndun og efnahagsaðgerðir voru algjört dagaspursmál svo að ekki þótti einu sinni fært að bíða með lagasetningu þá örfáu daga sem voru til þingsetningar. Nú telja menn sig hafa góðan tíma og meira að segja ráðrúm til fundahalda úti um landsbyggðina alls óviðkomandi þeim
stjórnunarstörfum sem þeir hafa þó talið sig manna best fallna til að gegna. Það er annars hið undarlegasta mál og skilningurinn kann að vefjast fyrir ýmsum. Oddvitar tveggja stjórnarflokkanna boða til fundahalda að því er virðist í óþökk allra samstarfsmanna sinna og það á þessum tíma, þegar einhverjir hefðu haldið að brýnna væri að sinna ýmsu öðru, svo sem eins og efnahags- og atvinnumálum. Vafalaust verða þó einhverjir fegnir að fá tækifæri til að ræða við þessa hæstv. ráðherra augliti til auglitis og spyrja þá m.a. rækilega út í skilgreiningu þeirra á jafnrétti og félagshyggju. Þeir láta hins vegar ekki svo lítið að vera við þessa umræðu. Þeir eru e.t.v. að búa sig undir þessa fundaherferð, enda veitir þeim ekki af að skerpa hugmyndir sínar og skilgreiningar og e.t.v. verða þeir líka spurðir út í þá einkennilegu birtingarmynd jafnréttis og félagshyggu sem sjá má í þessu frv. til laga um aðgerðir í efnahagsmálum, 20. máli þessa löggjafarþings.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um frv. sem hér er á dagskrá. Við kvennalistakonur greiðum atkvæði gegn því eftir sem áður.