Samkeppnisstaða innlendrar kökugerðar
Fimmtudaginn 05. janúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég hef leyft mér að flytja svohljóðandi fsp. til hæstv. iðnrh.:
    ,,Ætlar ríkisstjórnin að fara að sameiginlegum tillögum nefndar sem iðnrh. skipaði hinn 6. apríl 1988, til að gera úttekt á samkeppnisstöðu innlendrar kökuframleiðslu, en nefndin skilaði endanlegu áliti hinn 3. nóv. sl.?``
    Þess ber að geta að fyrstu tillögur þessarar nefndar lágu fyrir strax í september sl., en nefndin var skipuð af iðnrh. Í henni áttu sæti, auk fulltrúa iðnrn., fulltrúi fjmrn., reyndar tveir, fulltrúi úr Þjóðhagsstofnun, viðskrn., landbrn. og frá Landssambandi bakarameistara.
    Niðurstöður nefndarinnar voru samhljóða, en í októbermánuði og snemma í nóvembermánuði var tillögunum breytt vegna leiðréttinga á niðurstöðum. Aðaltillaga nefndarinnar er sú að lagt verði verðjöfnunargjald, tímabundið breytilegt gjald, á innfluttar kökur og majónes samkvæmt stofnsamningi EFTA og Fríverslunarsamningi Evrópubandalagsins og gjaldið verði tilkynnt EFTA og EBE a.m.k. mánuði fyrir gildistöku. Verðjöfnunargjaldið verði 25% á innfluttar kökur og 16% á innflutt majónes.
    Mér er kunnugt um að í framhaldi af þessum niðurstöðum hefur verið skrifað bréf til fjmrn. Hér er á ferðinni mjög brýnt mál sem hægt er að taka á innan ramma samninga Íslands við viðskiptabandalögin. Þess vegna er þessi fyrirspurn lögð fram og vænti ég þess að hæstv. ráðherra geti greint frá því hvaða ákvörðun ríkisstjórnin hefur tekið í þessu mikilvæga máli fyrir þann hluta íslensks iðnaðar sem stundar kökugerð.