Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherra svör hans og tel reyndar fyllstu ástæðu til að endurskoða þessar reglur og þá sérstaklega þann hátt sem hafður er á um afgreiðslu þessara fríðinda eða hlunninda og enn fremur að greiða risnu stofnana og opinberra embættismanna t.d. samkvæmt reikningum eða með öðrum hætti sem ekki býður heim mistúlkun, freistingum, misnotkun eða spillingu. Ég held að nýliðnir atburðir hafi gefið tilefni til að líta vel í saumana á þessu máli og þá í samvinnu við Ríkisendurskoðun og þingið að setja niður reglur sem allir sætta sig við og telja eðlilegar og réttlátar.
Reyndar gerði ég ekki fyrirspurn um það hvort tóbak heyrði til með áfengi sem fríðindi, en ef svo er tel ég að svipaðar reglur eigi einnig að gilda um það. Hitt er svo annað mál hvaða fordæmi ríkið og fulltrúar þess gefa og ber að gefa sem gestgjöfum. Ef ríkið vill gæta samræmingar og forðast tvískinnung hlýtur það að draga úr veitingum áfengis og tóbaks til að standa við þá heilbrigðisstefnu sem stjórnvöld hafa samþykkt og ætla sér að stunda í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina sem það er aðili að. Sú stefna miðar að því að draga verulega úr áfengisneyslu og tóbaksnotkun fram til aldamóta. Hægri höndin verður að vita hvað sú vinstri gerir og eftir höfðinu dansa líka limirnir þannig að stjórnvöld hafa mikla ábyrgð í þessum efnum. Ekki bara að gæta velsæmis, réttlætis, forðast spillingu heldur líka að gefa góð og hófleg fordæmi.