Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. svör hans og upplýsingar sem hann hefur dreift. Ég verð að segja um upplýsingarnar að skammt miðar. Af kjöttegundum sem hér er um rætt eins og svínakjöti sköffum við aðeins 6% til þeirra, 5% af nautakjötinu, 11% af því sem þeir borða af kjúklingum og 55% af eggjunum. Þar hefur miðað hraðast.
Það sem ég vildi svo segja í viðbót er að það vill svo vel til að áður hefur verið fjallað um þetta mál á hv. Alþingi fyrir um það bil þremur árum. Þá töluðu ýmsir hv. alþm. og gáfu fyrirheit um að jafnvel mætti breyta lögum eða leita eftir samkomulagi um breytta stefnu í þessu máli sem ég vænti að hæstv. utanrrh. muni gera. Þá sagði hæstv. núv. forsrh. Steingrímur Hermannsson, sem þá var einnig forsrh., m.a., með leyfi forseta, þegar hann fjallaði um væntanlega niðurstöðu lögfræðinganefndarinnar:
,,Það kann vel að vera að ríkisstjórnin síðan ákveði að hún vilji beita sér fyrir breytingu á lögum ef í ljós kemur að úrskurðurinn er á þann veg, en um það er ekki tímabært að taka ákvörðun fyrr en álit lögfróðra manna liggur fyrir.`` --- Nú liggur það fyrir að lögfræðingarnir töldu að innflutningurinn á kjötinu væri ekki ólögmætur þrátt fyrir íslensk lög um sjúkdómavarnir frá 1928.
Forsrh. sagði enn fremur: ,,Það munu verða hafnar viðræður við varnarliðið um þennan kjötinnflutning og jafnframt um kaup á íslenskum landbúnaðarafurðum öllu fremur en að flytja þær inn erlendis frá.`` --- Ég hygg að hann sé enn sömu skoðunar.
Ég veit að við þetta var staðið en árangurinn varð sorglega lítill eins og kemur fram í skýrslu utanrrh.
Við verðum að höggva á innflutninginn og ég tel samningaleiðina besta í því efni. Það ber að láta fyrst á hana reyna.
Mesta athygli vakti þó ræða kornungs þingmanns í þessum umræðum fyrir þremur árum. Það var hæstv. núv. landbrh. Steingrímur J. Sigfússon sem þá vakti mesta athygli í þessum umræðum, en hann sagði, með leyfi forseta, í þessu máli það sem segja þarf og vitna ég í þau ummæli, með leyfi forseta, og heiti á hans stuðning í þessu máli í framhaldi af því, en Steingrímur sagði:
,,Fyrir liggur álit færustu sérfræðinga þjóðarinnar á því að hér sé um stórhættulega hluti að ræða þar sem er eftirlitslaus innflutningur á hrámeti inn í landið, jafnvel frá svæðum þar sem sjúkdómar á borð við gin- og klaufaveiki geisa eða hafa geisað einhvern tíma fyrir stuttu síðan.``
Hann taldi að þessa fyrrv. ríkisstjórn skorti stefnu í málinu, að okkur bæri að banna þennan innflutning nú þegar.
Þar með lýkur tilvitnun í þessi ummæli. Vilji er allt sem þarf og látum nú til skarar skríða í þessu umdeilda máli. Ég treysti því um þá samninga sem utanrrh. gat um sem nú færu í hönd að hann taki þar forustu í því máli með aðstoð hæstv. forsrh. og hæstv. landbrh. og að menn stöðvi þennan innflutning og þá áhættu sem honum fylgir.