Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið er það einn þáttur í tekjugrundvelli þess fjárlagafrv. sem ætlunin er að afgreiða á morgun að útsöluverð áfengis og tóbaks verði hækkað eins og oft gerist í okkar þjóðfélagi. Þegar ákveðið var að afgreiða tekjuöflunarfrumvörp ríkisstjórnarinnar fyrir jól var um það rætt að bráðabirgðalögin yrðu þá einnig afgreidd um svipað leyti og var þá brugðið á það ráð að tengja afgreiðslu þess breytingu á einni grein þess frv. sem heimilaði hækkun á áfengi og tóbaki í samræmi við tekjuáætlun fjárlagafrv. Lögfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu að þar sem verð á áfengi og tóbaki er tilkynnt með útgáfu verðskrár gildi verðstöðvunarákvæði bráðabirgðalaganna um þessa tegund tekjuöflunar ríkissjóðs þótt það gildi ekki um aðrar tegundir skatta og gjalda sem lögð eru á með sérstökum lögum.
Nú hefur verið ákveðið í samkomulagi þingflokka að láta afgreiðslu bráðabirgðalaganna bíða og þess vegna er farin sú leið að taka þetta eina atriði út úr og leggja fram um það sérstakt frv. hér í hv. deild. Frv. er í sjálfu sér mjög einfalt. Það er samhljóða þeim texta sem lá fyrir í hv. Nd. varðandi breytingu á bráðabirgðalögunum.
Á árinu 1989 er gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs aukist um 450 millj. kr. vegna sérstakra hækkana á áfengi og tóbaki umfram almennar verðlagsbreytingar.
Ég vænti þess síðan í góðu samkomulagi sem gert hefur verið við forustumenn þingflokkanna að þetta frv. fái afgreiðslu í þessari deild og hv. Nd. og þar með þingsins alls um leið og fjárlagafrv. er afgreitt.
Að lokinni þessari umræðu mælist ég svo til þess að frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn.