Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar deildar kom saman til fundar fyrir stundu og fjallaði þá um þetta frv. til l. um heimild til að hækka útsöluverð á áfengi og tóbaki. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til málsins. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Ég held að rétt sé að fram komi sú skýring að fyrir jól var flutt í Nd. brtt. við bráðabirgðalögin sem þar eru til meðferðar um að heimila hækkun á áfengi og tóbaki þrátt fyrir verðstöðvunarákvæði laganna. Sú tillaga kom sem sagt fram í Nd. í desember og þar sem ljóst er nú að þinghlé verður um tíma og bráðabirgðalögin hljóta ekki afgreiðslu og þar með þessi brtt. fyrr en þing kemur saman að nýju þótti nauðsyn bera til að afla þessarar heimildar til að hækka verð á áfengi og tóbaki sem er í tengslum við tekjuforsendur fjárlagafrv. sem hér verður afgreitt væntanlega á morgun eða fyrir helgina alla vega.
Þetta er einfalt mál og óþarfi að hafa um það svo mörg orð. Undir nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. skrifa auk þess er þetta mælir Valgerður Sverrisdóttir, Jóhann Einvarðsson og Margrét Frímannsdóttir og meiri hl. leggur til að málið verði samþykkt.