Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 05. janúar 1989

     Frsm. samvn. samgm. (Karvel Pálmason):
    Virðulegi forseti. Ég vil með örfáum orðum gera grein fyrir nál. samvn. samgm. og einnig þeim tillögum sem hún leggur til að samþykktar verði hér.
    Ég vil strax byrja á því að þakka meðnefndarmönnum mínum fyrir samstarfið. Það gekk greiðlega eins og ávallt og nánast hnökralaust og miðað við aðstæður vona ég að flestir ef ekki allir séu tiltölulega ánægðir þó að úr litlu hafi verið að moða, það skal tekið fram.
    Ég ætla ekki að fara í gegnum nál., en vil aðeins segja örfá orð um það.
    Samvn. samgm. hafði að venju fjallað um erindi þau sem Alþingi hafa borist um framlög á fjárlögum til stuðnings við rekstur flóabáta vegna vöru- og fólksflutninga á einstökum svæðum. Farsvæði þessara báta eru á Faxaflóa, á Breiðafirði, á Ísafjarðardjúpi, á leiðinni frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja. Enn fremur eru flutningastyrkir á Eyjafirði og milli Mjóafjarðar og Neskaupstaðar. Jafnframt hefur nefndin tekið fyrir og rætt erindi sem borist hafa vegna flutninga á landi, svo sem til reksturs snjóbifreiða eða vegna mikils snjómoksturs þar sem erfitt reynist fyrir viðkomandi byggðarlög að standa straum af þeim kostnaði sem þau verða að bera samkvæmt snjómokstursreglum Vegagerðar ríkisins.
    Enda þótt reglurnar hafi verið nýrýmkaðar á síðustu árum verða íbúar í snjóþungum héruðum fyrir verulegum kostnaði umfram aðra þegna þjóðfélagsins við að halda uppi nauðsynlegum samgöngum. Til að minnka eitthvað þennan aðstöðumun hafa verið veitt á fjárlögum hvers árs framlög til þeirra aðila sem að dómi nefndarinnar eru verst settir að þessu leyti.
    Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóri samgrn., og Guðmundur Einarsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, mættu á fundum nefndarinnar og veittu henni margvíslegar upplýsingar sem komu nefndinni að verulegu gagni og færir nefndin þeim sérstakar þakkir fyrir störf þeirra í hennar þágu.
    Á undanförnum árum hefur í framsögu fyrir tillögum nefndarinnar verið gerð nákvæm grein fyrir einstökum þáttum þeirra, sérstaklega varðandi hin stærri verkefni, þ.e. flutninga á sjó. Þar sem fyrir þessum þáttum er skilmerkilega gerð grein í áliti nefndarinnar sé ég ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um einstaka báta heldur vísa til nál. sem er á þskj. 402. Þar er gerð, að ég hygg, nokkuð rækileg grein fyrir þessum þáttum.
    Ég vil taka fram að flestöllum umsóknum fylgdu greinargóðar upplýsingar um viðkomandi verkefni og á þetta einkum við um flutninga á sjó. Enda þótt þeir aðilar sem styrks til landflutninga njóta hafi einnig sent nefndinni greinargóðar upplýsingar um rekstur og annað er umsóknina varðar er í nokkrum tilvikum misbrestur á því að reikningar fylgi umsókn og voru nefndarmenn sammála um að styrkur yrði ekki greiddur á næsta ári fyrr en reikningar bærust samgrn. fyrir yfirstandandi ár.
    Enn fremur vill nefndin beina því til samgrn. að þeim aðilum sem fá stofnstyrki undir liðnum

Flutningar á landi verði kynnt sú meginregla nefndarinnar að stofnstyrkir vegna ákveðinna verkefna verði eingöngu veittir í þrjú ár. Tekið skal fram til fróðleiks að nefndin hefur við úthlutun stofnstyrkja að jafnaði við það miðað að hann verði ekki hærri samtals en helmingur kostnaðar við kaup á vélum og tækjum.
    Ég mun nú víkja að tillögunni og þeim breytingum sem nefndin er sammála um að gera á fjárframlagi til þessara málaflokka á fjárlögum fyrir árið 1989.
    Nefndin leggur til að framlag til flóabáta og vöruflutninga verði 109 millj. 609 þús. á árinu 1989. Samsvarandi upphæð á fjárlögum 1988 var 92 millj. 719 þús. Hér er um að ræða 18% hækkun milli ára. Til flutninga á landi er lagt til að verja 16 millj. 49 þús., en fyrir árið 1988 var upphæðin 14 millj. 289 þús. Hækkun á þessum lið nemur um 12%. Til reksturs flóabáta og skyldra verkefna leggur nefndin til að framlagið verði 93 millj. 560 þús., en samsvarandi framlag 1988 var 78 millj. 430 þús., hækkun er um 19%.
    Nefndin leggur til að veittir verði styrkir til 54 verkefna vegna flutninga á landi, tveimur færri en eru á fjárlögum fyrir árið 1988. Af þessum liðum leyfi ég mér að gera að umtalsefni nokkur atriði og nefni fyrst tvö verkefni sem lagt er til að fái stofnstyrk fjórða árið í röð. Er hér um algjöra undantekningu að ræða og alls ekki til eftirbreytni. Hér er átt við stofnstyrki til vetrarsamgangna í Árneshreppi, það er liður nr. 18 í brtt. og til snjóbifreiðar í Oddsskarði og Fagradal, liður nr. 47. Nefndin hefur farið fram á það við samgrn. að þessum aðilum verði ritað bréf og þeim tilkynnt að ekki verði um frekari stofnstyrkveitingar til þeirra að ræða að öllu óbreyttu.
    Ég leyfi mér enn fremur að minnast á lið nr. 54 í tillögunum, Óráðstafað, en um hann er það að segja að hann er fyrst og fremst hugsaður sem sjóður sem hægt yrði að grípa til í neyðartilvikum þegar samgöngur teppast og grípa þarf til dýrari flutningstækja. Slíkir flutningar yrðu síðan greiddir samkvæmt reikningi og hefur verið farið fram á það við Halldór S. Kristjánsson, skrifstofustjóra í samgrn., að hann annist greiðslu slíkra reikninga í samráði við formenn samgn. Alþingis.
    Til reksturs flóabáta og skyldra verkefna leggur nefndin til að styrkir
verði veittir til níu verkefna eða til sömu verkefna og á fjárlögum fyrir árið 1988.
    Ég sagði í upphafi að ég mundi hafa tiltölulega fá orð um þessar tillögur. Ég held að nál. á þskj. 402 skýri það sem skýra þarf í þessum efnum og vitna til þess þannig að þm. geti kynnt sér það. Venjan hefur verið sú að brtt. nefndarinnar hafa verið lesnar upp, lið fyrir lið. Ég hyggst ekki gera það nú, ég tel ekki ástæðu til slíkra hluta. Þær till. sem nefndin gerir liggja fyrir á þskj. 403. Það geta þingmenn allir kynnt sér gaumgæfilega.
    En nefndin leggur að sjálfsögðu til að þetta verði samþykkt og undir það rita í nál. Karvel Pálmason, Hjörleifur Guttormsson, Guðmundur Ágústsson, Guðni

Ágústsson, Stefán Guðmundsson, Árni Gunnarsson, Jón Helgason, Ólafur Þ. Þórðarson, Þorv. Garðar Kristjánsson, Friðjón Þórðarson, Skúli Alexandersson, Egill Jónsson, Ingi Björn Albertsson og Matthías Á. Mathiesen.
    Samvn. samgm. er sammála um að leggja til að þær tillögur sem hér liggja fyrir við afgreiðslu fjárlaga til þessa þátta í fjárlögunum verði samþykktar.