Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegur forseti. Ég vil við lok þessarar umræðu þakka hv. fjvn. fyrir mjög gott verk við erfiðar og óvenjulegar aðstæður. ( Gripið fram í: Enginn tekur við fyrir hönd fjvn.) Það mætti kannski kanna það hvort einhver fjárveitinganefndarmaður væri í salnum til að taka við þessum þökkum. ( PP: Margrét Frímannsdóttir er hér.) Að vísu er það rétt að minn ágæti þingflokksformaður, sem jafnframt er í fjvn., er sá eini í salnum en með allri virðingu fyrir henni hefði ég kosið að þeir væru aðeins fleiri og mætti kannski biðja forseta að athuga hvort einhverjir þeirra eru í húsinu.
Ég mæli það af heilum huga að þessi vinna hefur verið á þann veg að það ber að þakka hana alveg sérstaklega við lok þessarar umræðu. Eins og þingheimi er kunnugt þá kom fjárlagafrv. fram síðar en venja er vegna þess að ný ríkisstjórn tók við fáeinum vikum fyrir þing og því hafði fjvn. skemmri tíma til þess að fjalla um frv. en að jafnaði hefur verið. Engu að síður hefur innan nefndarinnar tekist mjög góður samstarfsandi og ég held að að öllum öðrum ólöstuðum beri sérstaklega að þakka formanni nefndarinnar og stjórn nefndarinnar ásamt fulltrúum stjórnarandstöðunnar í fjvn. sem hafa sýnt bæði mjög góðan vilja og ríkan pólitískan skilning og drengskap á því verki sem hér hefur verið unnið og eiga þeir miklar þakkir skildar fyrir sitt framlag.
Það er auðvitað þannig í þinginu eins og við þekkjum að menn þurfa oft að leita samvinnu til þess að koma verkum fram og ljúka málum. Þá ríður á að þeir sem vinnan snertir sérstaklega hafi bæði reynslu og góðan vilja til þess að tryggja að þetta náist í höfn. Auðvitað hafa fulltrúar þeirra flokka sem ekki eiga aðild að þessari ríkisstjórn flutt mjög ítarlega gagnrýni á það frv. sem verið er að afgreiða. Ég ætla ekki við þetta tækifæri að taka þá gagnrýni til umræðu en tel að afstaða þeirra, bæði fyrir jól og eins eftir áramótin, eigi þátt í því að hægt sé að ljúka þessu verki og sýni, eins og ég hef sagt, góðan pólitískan vilja og samvinnuanda sem ber að þakka.
Við framlagningu frv. sagði ég að í því fælist tilraun til að snúa við þeirri þróun sem verið hefur í ríkisfjármálunum á því ári sem er nýliðið. Enginn okkar getur fullyrt það hér og nú hvort þessi tilraun muni takast á þann veg sem við aðstandendur frv. óskum en ég vil þó segja það undir lok þessarar umfjöllunar að við munum reyna að haga þannig vinnu við framkvæmd frv. á þessu ári að það takist. Ég vil nú, eins og ég gerði í framsöguræðu minni við 1. umr., óska eftir sérstakri samvinnu við fjvn. um framkvæmdina á þessu ári þótt vinnu nefndarinnar við frv. sjálft sé formlega lokið. Þar eru fjölmörg atriði sem ég hef hug á að ræða við fjvn. á næstu vikum til þess að tryggja að þingið og framkvæmdarvaldið geti í sameiningu stuðlað að því að þær endurbætur, sem við erum öll sammála um að þurfi að hrinda í framkvæmd, geti orðið að veruleika. Ég mun einnig efna til funda með fulltrúum einstakra ráðuneyta á næstu dögum til að undirbúa það að á vegum
ráðuneytanna verði komið í framkvæmd þeim ákvörðunum sem í frv. felast og reyna á ýmsan annan hátt að tryggja að þessi tilraun sem í frv. felst takist.
Ég vil einnig undir lokin láta í ljósi þá skoðun að við munum fagna góðu samstarfi við Ríkisendurskoðun í hennar störfum. Á undanförnum mánuðum hefur Ríkisendurskoðun að mörgu leyti farið inn á nýjar brautir og ég held að flestir séu sammála um að þær séu til bóta þótt auðvitað megi hafa á því ýmsar skoðanir hve langt Ríkisendurskoðun eigi að ganga í þátttöku sinni á öllum stigum fjárlagagerðarinnar. Hennar verkefni er fyrst og fremst að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaganna og vara við því sem úr skorðum fer og gera síðan upp dæmið þegar því er lokið. Ef góð samvinna tekst með öllum þessum aðilum sem ég hef hér nefnt, þ.e. fjmrn., einstökum fagráðuneytum, fjvn. og Ríkisendurskoðun, þá vona ég að við getum á nýju ári beitt ýmsum aðferðum sem verða vænlegri til að ná árangri í þessum efnum en gert var á því ári sem nú er að líða, með allri virðingu fyrir þeim sem tóku þátt í því starfi.
Það hefur hvarflað að mér að til greina gæti komið að gefa þinginu skýrslur með reglubundnum hætti um það hvernig gangi að tryggja framkvæmd fjárlaganna. Það er á þessu stigi einungis hugmynd og ég hef ekki tekið um það ákvörðun en mun ræða það bæði við fjvn. og aðra þá sem ég hef nefnt hver viðbrögð manna eru við slíku. Ég vil einnig geta þess að ég mun beita mér fyrir því að fjáraukalög og ríkisreikningur komi fyrr til umfjöllunar á Alþingi en gert hefur verið á undanförnum árum og afgreiðsla fyrir það ár sem nú er nýliðið gæti jafnvel fari fram á næstu mánuðum.
Ég vil ekki hafa þessi orð fleiri en vildi nota tækifærið til þess að koma bæði þökkum mínum á framfæri og þessari stuttu lýsingu á því hvernig ég tel nauðsynlegt að vinna að framkvæmd fjárlaganna eftir að þau hafa verið samþykkt á Alþingi, sem væntanlega verður síðar á þessum degi sem nú er nýhafinn, tæpum tveimur klukkustundum eftir miðnætti.