Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. fjh.- og viðskn. sem liggur fyrir á þskj. 424. Þar segir að nefndin hafi athugað frv. og mæli meiri hl. með því að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 407. Undir þetta rita Páll Pétursson, Árni Gunnarsson, Ragnar Arnalds og Guðmundur G. Þórarinsson.
    Það skal tekið fram að fyrir mín mistök var hv. þm. Pétur Þórarinsson ekki boðaður á fund nefndarinnar. Hann er varamaður hv. þm. Stefáns Valgeirssonar sem hefur setið fundi fjh.- og viðskn. og fylgst þar með störfum. Það voru mín mistök að boða ekki hv. þm. og bið ég hann afsökunar á þessari vangá minni. En ég hef rætt málið við hann og hann setur sig ekki upp á móti þeirri afgreiðslu sem meiri hl. nefndarinnar leggur hér til.