Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að formaður Sjálfstfl., hv. þm. Þorsteinn Pálsson, skuli fá enn eitt tækifæri til að spila þessa plötu sína í svona 35. sinn hér á undanförnum vikum, en ég ætla ekki að eyða sérstökum orðum að því. Hins vegar vil ég vekja athygli hv. alþingismanna á því af því tilefni sem hér hefur gefist að í fjárlagafrv. kemur fram hver er ætlaður hluti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í tekjum ríkissjóðs. Það er í frv. þegar það var lagt fram rúmlega 5,5 milljarðar. Í því frv. sem við erum hér að ræða kemur fram, eins og reyndar í öðrum gögnum varðandi það fjárlagafrv. sem nú á að fara að afgreiða, að ætlunin er að skapa ríkissjóði tekjur af sölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins sem nemur 450 millj. sérstaklega í viðbót. Þetta er sá talnagrundvöllur sem hér liggur fyrir, afdráttarlaus og skýr og á að veita mönnum nokkuð ljósa hugmynd um þá stærðargráðu sem hér er á ferðinni. ( FrS: Veit ekki ráðherrann svarið við spurningunni?) Jú, jú, ráðherra veit ósköp vel svarið við spurningunni. ( FrS: Af hverju svarar þá ekki ráðherra spurningunni?) Varaformaður Sjálfstfl. getur alveg tekið þessu rólega og beðið eftir því að ræðunni sé lokið nema hann telji sérstaka þörf á að hjálpa formanninum. ( FrS: Formanni Alþb.?) ( MB: Meðan ráðherrann hugsar.) Ráðherra þarf ekkert að hugsa sérstaklega í þessu máli. Málið liggur alveg skýrt og ljóst fyrir. ( FrS: Af hverju svarar ráðherrann þá ekki?) Hins vegar væri æskilegt að þingmenn Sjálfstfl. læsu þingskjölin. Það væri til fyrirmyndar að þeir læsu þingskjölin, skoðuðu þann talnagrundvöll sem þar liggur frammi. Enn fremur væri æskilegt að þeir ræddu líka við þingmenn Sjálfstfl. í Ed. vegna þess að á fundi fjh.- og viðskn. Ed., lokuðum fundi eins og hv. þm. Albert Guðmundsson var að fara fram á, veitti ég m.a. upplýsingar um hvaða verðlagshækkanagrundvöllur lægi hér að baki. Sjálfstfl. á ágætan og virtan fulltrúa í þeirri nefnd. Hann óskaði þessara upplýsinga þar. Þær voru veittar þar. Ef nefndarmenn í nefnd í hv. Nd. hefðu einnig óskað eftir því eins og gert var á nefndarfundi í Ed. hefði ég að sjálfsögðu veitt þær einnig hér. En þær hafa verið veittar fjh.- og viðskn. Ed. og rökstuddar og hefði verið sjálfsagt að veita nefnd í hv. Nd. ef hún hefði haft jafnmikinn raunverulegan áhuga á málinu og fjh.- og viðskn. Ed.
    Ég ætla ekki að gera það að nánara umræðuefni hér. Hins vegar vildi ég vekja athygli á því, sem kannski hefur farið fram hjá hv. þm., að í þeirri verðstöðvun sem hér hefur ríkt hefur verslunin í landinu haft heimild til að hækka vörur vegna gengisbreytinga. Áfengis- og tóbaksverslunin hefur hins vegar ekki hækkað verð á áfengi og tóbaki vegna gengisbreytinganna í september sl. heldur tekið þá gengisbreytingu á sig, svo ég noti orðalag hv. þm. Þorsteins Pálssonar. ( ÞP: Eins og aðrir heildsalar.) Nei, þeir hafa haft lagalega heimild til þess að gera það og margir þeirra hafa notað hana, hv. þm. Þorsteinn Pálsson, þó að samkeppnin, sem hv. þm. er mikill fylgismaður við, hafi hins vegar gert það að

verkum að það hafi með mismunandi hætti komið út í verðlagið og þar með birst kostir samkeppninnar. Varla löstum við það hér á Alþingi sem teljum að hæfileg og eðlileg samkeppni geti verið til bóta. Áfengis- og tóbaksverslunin hefur tekið á sig þá gengisfellingu sem varð í september vegna þess að það hefur ekki orðið nein verðhækkun á þessum vörum í kjölfar hennar þótt til þess hafi verið heimild.
    Hins vegar hefur því ekkert verið leynt að eins og lengi hefur verið, í áratugi, er áfengi og tóbak, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, einn af tekjustofnum ríkisins og skoðað sem slíkt og það er á þeim grundvelli sem þetta frv. er hér lagt fram.
    Ég vil hins vegar lýsa þvi hér yfir að ég er sammála þeim sjónarmiðum, sem komu fram hjá hv. þm. Kristínu Halldórsdóttur og þingkonum Kvennalistans, að það sé æskilegt að skoða rækilega breyttar verðáherslur í vínsölu hér á landi til að draga með vissum hætti úr sölu sterkra drykkja. Ég hef þegar rætt það við forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins að þegar horft sé lengra fram í tímann ræði menn þann þáttinn. Hæstv. heilbrmrh. hefur einnig rætt það mál við mig svo og einnig ýmsir forsvarsmenn heilbrigðisstéttanna í landinu, bæði hvað snertir verðlagningu á tóbaki og hinum ýmsu tegundum áfengis, og ég mun skoða það mjög rækilega á næstu vikum og mánuðum.