Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Hæstv. fjmrh. lýsti því yfir í ræðustól Nd. Alþingis að hann hvorki hugsaði né þyrfti að hugsa. Ég ætla aðeins að segja það eitt að það er engin afsökun fyrir núverandi stjórnarstefnu og afleiðingum hennar þó að hún sé framkvæmd í algeru hugsunarleysi.