Stofnlánadeild landbúnaðarins
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Hæstv. forseti. Vegna fyrirspurnar hv. 1. þm. Reykv. til mín vil ég láta koma fram að heimilt er að fjármagna öll afurðalán vegna útflutningsframleiðslu allt að 3 / 4 hlutum af útflutningsverðmæti hennar með erlendu lánsfé. Þessi heimild sem viðskrn. hefur veitt gildir um allar greinar útflutnings, jafnt iðnað, fiskeldi sem og sjávarútveg. Ég ítreka því að þessi heimild tekur líka til útflutnings á eldisfiski.