Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég skal ekki tefja þessa umræðu en ég tel að það þurfi nauðsynlega að koma fram að þegar við fulltrúar stjórnarandstöðunnar gengum af síðasta fundi landbn. var það undir því samkomulagi, eftir því sem við best skildum, að ef máli þessu yrði hleypt hér inn í deildina væri ljóst að Ed. mundi hleypa málinu beint í gegn, þ.e. fyrir frí. Ef það væri hins vegar ekki ljóst kröfðumst við þess að málið yrði kyrrt í Nd. og fengi sína eðlilegu umfjöllun þar því að hér er á ferðinni mál sem er gersamlega óunnið og er hræðilegt til þess að vita að nánast dag eftir dag er þingmönnum, og þá náttúrlega sérstaklega þingmönnum stjórnarandstöðunnar, stillt upp við vegg undir stórum orðum um ábyrgð og annað slíkt ef þeir ekki samþykkja gersamlega óunnin plögg frá stjórnarliðinu. Svona vinnubrögðum mótmæli ég alfarið.
Hins vegar hafa verið gerðar nokkrar breytingar á frv. sem fróðir menn segja mér, og ég skal viðurkenna að þessi mál sem hér eru til umræðu eru kannski ekki mín sterkasta hlið, að séu að einhverju leyti til bóta. Ég mun því ekki leggjast gegn þessu máli í trausti þess að gert hafi verið það samkomulag við Ed. sem um var rætt og ég óska þess að sjálfsögðu að formaður nefndarinnar geri grein fyrir því hér á eftir.
Ég gagnrýni harðlega þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið í nefndinni varðandi frv. Ég skrifaði upp á nál. í gær til þess að flýta þessu máli. Síðan áttu sér stað ákveðnar breytingar. Menn sem áður höfðu skrifað undir með fyrirvara hurfu frá því og lagðar eru fram brtt. sem ég sem nefndarmaður fékk aldrei að sjá og var ég þó með á þessu áliti. Þetta eru að sjálfsögðu forkastanleg vinnubrögð og ég óska að slíkt endurtaki sig ekki.
Herra forseti. Í prinsippi er ég afskaplega á móti því iðgjaldi sem verið er að setja á því hér er náttúrlega ekki verið að gera neitt annað en að refsa þeim sem betur standa sig til þess að halda skussunum uppi.
Í öðru lagi kom það mjög skýrt fram á nefndarfundi að verulegir vankantar eru á þessu sem fulltrúi Búnaðarbanka Íslands benti m.a. á og hefði ekki verið vanþörf á að fá skriflega umsögn þeirra til þess að lagfæra þetta mál.
Í þriðja lagi, í ljósi þess að hér er um meingallað mál að ræða, átti endurskoðunarákvæðið að vera mun styttra eða í það lengsta til 1991.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta meira að sinni en ítreka þá ósk mína að formaður nefndarinnar geri grein fyrir því samkomulagi sem vonandi hefur verið fram tekið í Ed.