Fjárlög 1989
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. ( AG: Hæstv. forseti.) Herra forseti. Ég hef áður útskýrt það fyrir þingheimi að ég tel það ávarp mjög rökrétt og breyti því ekki.
    Ég hef litið svo á að treysta megi því að þegar hér séu lögð fram þingskjöl séu það hinir uppáskrifuðu aðilar sem séu flm. að tillögunni. Ég vil því undirstrika að ég lít svo á að það hafi verið mismæli hjá hv. 11. þm. Reykv. þegar hann lýsir því yfir að sú tillaga sem hér var greitt atkvæði um sé tillaga Ríkisendurskoðunar og greiddi að sjálfsögðu atkvæði í ljósi þess að ég veit ekki betur en að sá sem skrifar upp á sem flm. sé flm. tillögunnar. Það er fráleitt að rugla því saman að fyrir fjvn. starfa starfsmenn Ríkisendurskoðunar og því að þeir séu orðnir flytjendur að máli hér í þinginu.