Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Alþingismönnum hefur lengst af tekist að afgreiða heiðurslaun svo að bæði hafi orðið Alþingi, þjóðinni og þeim listamönnum sem í hlut eiga til sóma og þessi verðlaun hafa verið veitt vegna þess mikla framlags sem viðkomandi listamenn hafa lagt til menningar íslensku þjóðarinnar og við stöndum öll í þakkarskuld við. Til allrar hamingju hefur það jafnan verið svo að fleiri hafa verið verðugir þess að eiga sæti í hópi þeirra manna sem notið hafa heiðurslauna en við höfum getað veitt þá sæmd hverju sinni.
Ég segi nú eins og jafnan áður þegar um þessi mál hefur verið fjallað hér á Alþingi að ég sakna þess að ekki skuli fleiri listamenn á heiðurslaunum en þar eiga sæti um leið og ég óska þeim til hamingju sem nú voru valdir í þennan hóp og allir eiga það skilið. Ég vona að Alþingi Íslendinga beri áfram gæfu til að geta sýnt sínum bestu listamönnum sóma á hógværan hátt þannig að allir finni að vel sé að þessu staðið og allir finni að hugur fylgi máli. Ég segi já.