Fjárlög 1989
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Albert Guðmundsson:
    Virðulegur forseti. Það var gerð tilraun til að hækka þá upphæð óverulega sem hér er verið að greiða atkvæði um, en í þessari tillögu er gerð tillaga um 51 millj. rúmalega í 157 íþróttamannvirki víðs vegar um landið. Hér er verið að samþykkja allt frá 3 þús. kr. framlagi eins og í lið nr. 82 sem er Lýtingsstaðahreppur, íþróttavöllur. Ég held að það fari kannski upp undir fjórung af þessari upphæð í að koma greiðslunni til þeirra eða þá það kostar þá margfalt að sækja greiðsluna til Reykjavíkur. Það er svo hlægilegt það sem Alþingi er að samþykkja sem framlag til íþróttamannvirkja um landið allt að þó að ég sé líklega hlynntastur íþróttum af þeim sem eru hér inni ætla ég ekki að greiða atkvæði. Mér finnst það vera niðurlægjandi.