Fjárlög 1989
Föstudaginn 06. janúar 1989

     Hjörleifur Guttormsson:
    Virðulegur forseti. Hér er athyglisvert mál á ferðinni. Flm. þess hefur flutt í Sþ. till. til þál. um málið, um að það verði athugað og það er til meðferðar í félmn. Sþ. og var í gær sent út til umsagnar í samráði við flm. Ég tel að þetta sé ótímabær tillaga um fjárveitingu á þessu stigi og segi nei.