Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Við stjórnarsinnar höfum ekki orðið varir við nein sérstök samvinnu- eða samstarfstilboð frá Sjálfstfl. við gerð og undirbúning þessara fjárlaga. Þvert á móti hefur það komið mjög berlega í ljós við afgreiðslu fjárlaganna að Sjálfstfl. hefur ekkert haft til málanna að leggja utan það eitt að leggjast gegn tekjuöflunaráformum ríkissjóðs. Ég segi já.