Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég mun hafa örfá orð um þetta mál þó að sannarlega væri rík ástæða til að taka betur á því í umræðum. En ég sé ekki ástæðu til að tefja afgreiðslu þess eða umfjöllun, enda langt liðið á þennan síðasta dag þingsins fyrir hlé.
Það er enginn vafi á því að vandi fiskeldisfyrirtækja er mjög mikill og á honum verður að grípa á einhvern hátt og það án mikillar tafar. Hins vegar ber að harma að þetta mál skuli bera svo fyrirvaralítið að og án þess að okkur gefist nægilegur tími til að fjalla vandlega um það. Hér er um mikinn áhætturekstur að ræða, afar fjármagnsfrekan og það skiptir auðvitað meginmáli hvernig stjórnvöld standa að því að styðja þennan rekstur þegar hann er nú að byrja hér á landi og hefði kannski betur verið að því hugað fyrr.
Mér gefst kostur á að fjalla um þetta mál áfram í nefnd á eftir og hef tækifæri þar til að láta skoðanir mínar frekar í ljós og jafnvel láta þær koma fram í nál. Fulltrúi Kvennalistans í Nd. lýsti í nokkuð ítarlegu máli efasemdum sínum um málið og bar fram spurningar til hæstv. ráðherra sem því miður fengust ekki nógu góð svör við og sýnir það eitt að undirbúningur þessa máls hefur ekki verið eins og skyldi. En hins vegar, eins og ég sagði áðan, skil ég að það verður að grípa á vandanum og ég er reiðubúin að gera mitt besta á nefndarfundi á eftir til að hraða afgreiðslu málsins.