Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Mér þykir alveg sjálfsagt að hv. þm. sem hér vildi fá að flytja fsp. gefist kostur á að efna til umræðu utan dagskrár um þetta ef hann girnist og lýsi mig reiðubúinn til þess að svara honum á þeim vettvangi. Hins vegar kann það að vera vafasamt fordæmi að heimila þessa fsp. Það gæti leitt til þess að frammíköll utan úr sal yrðu heimiluð sem fyrirspurnir. Ég segi því nei.