Vinnubrögð í Seðlabanka Íslands
Þriðjudaginn 07. febrúar 1989

     Pálmi Jónsson:
    Virðulegi forseti. Af orðum virðulegs forseta má ráða að það sé virðingu Alþingis ekki samboðið að taka hér til umræðu fyrirspurn er varðar orð tiltekins hæstv. ráðherra í núv. ríkisstjórn. Þetta þykir mér nokkuð harður dómur hæstv. forseta um núv. ríkisstjórn og núv. hæstv. ráðherra. Ég er þessu ekki sammála og segi já.