Háskóli Íslands
Þriðjudaginn 07. febrúar 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Frv. sem hér liggur fyrir um breytingu á lögum um Háskóla Íslands er flutt í framhaldi af miklum umræðum sem urðu um stöðu Háskólans og embættaveitingar þar á sl. sumri. Meginbreytingarnar samkvæmt frv. eru sem hér segir:
    Í 2. mgr. 1. gr. frv. er gert ráð fyrir því að inn í 11. gr. bætist að umsækjendur um lektorsstörf verði meðhöndlaðir með sama hætti og umsækjendur um önnur embætti við Háskólann, þ.e. prófessorsembætti og dósentsstörf.
    Í 3. mgr. er um að ræða þá breytingu að það er gert ráð fyrir því að auk sérstakrar dómnefndar sem fjalli um umsækjendur og meti hæfi þeirra verði kvaddur til sérstakur ritari dómnefndar eða eins og segir í frvgr.:
    ,,Háskólaráð skipar ritara dómnefnd til ráðuneytis, leiðbeiningar og annarrar aðstoðar. Háskólaráð setur reglur um starfshætti dómnefndar og hlutverk ritara og skulu þær lagðar fyrir menntmrh. til staðfestingar.``
    Hlutverk ritarans á að vera eins og þarna kemur fram að vera dómnefndinni til ráðuneytis, leiðbeiningar og annarrar aðstoðar, en hlutverk hans á líka að vera að tryggja rétt umsækjanda og að réttlátlega sé um mál hans fjallað.
    Í 3. mgr. er gert ráð fyrir því að tvær meginbreytingar verði. Í fyrsta lagi að áður en háskóladeild fjallar um umsækjendur sem dómnefnd telur hæfa á að leita álits hlutaðeigandi skorar. Og af hverju er það gert? Jú, það er vegna þess að í háskóladeildum þar sem um er að ræða margvíslegar greinar, eins og í verkfræði- og raunvísindadeild og heimspekideild svo að tekið sé dæmi, er nauðsynlegt að kveðja til álit hlutaðeigandi skorar áður en háskóladeild fjallar um málið og kveður upp úrskurð sinn. Síðan er gert ráð fyrir því að lokum í þessari mgr. að engum manni megi veita prófessorsembætti, dósentsstarf eða lektorsstarf við Háskólann nema meiri hluti dómnefndar telji hann hæfan og meiri hluti deildarfundar mæli með honum í embættið eða starfið.
    Hér er um að ræða mál sem fékk ítarlega meðferð í háskólaráði á sínum tíma. Það var snemma í október sem ég ræddi við háskólarektor og óskaði eftir því að háskólaráð gerði tillögur um hvernig best væri að mati háskólaráðs að fara með embættaveitingar við Háskólann með hliðsjón af því markmiði að tryggja sem best sjálfstæði Háskólans. Í framhaldi af því óskaði ég síðan formlega eftir því 24. okt. að háskólaráð gerði tillögur að frv. og greinargerð í einstökum atriðum. Háskólaráð fjallaði síðan um þetta mál á fundi sínum 10. nóv. og svo aftur 24. nóv. þar sem það gekk frá samþykkt um málið. Háskólinn sendi samþykktina frá sér 29. nóv. Heimspekideild gerði sérstaka samþykkt út af þessu máli sem hún sendi menntmrn. og barst ráðuneytinu 21. des., en þá hafði frv. áður verið tekið fyrir í ríkisstjórninni þar sem það var afgreitt 15. des. --- og vegna umræðu um síðasta dagskrármál er rétt að taka það fram að hér er að sjálfsögðu um stjfrv. að ræða.
    Í 4. mgr. 1. gr. eru meginbreytingar frv. Þar er í

fyrsta lagi gert ráð fyrir því að álit hlutaðeigandi skorar verði kynnt á deildarfundi áður en deildin fjallar um hæfa umsækjendur. Í öðru lagi er háskóladeild falið að velja nýjan háskólakennara úr hópi hæfra umsækjenda og loks er veitingarvald ráðherra takmarkað með þeim hætti sem kemur fram í greininni og gert ráð fyrir því að ráðherrann megi ekki veita manni stöðu nema hann hafi hlotið meðmæli dómnefndar og háskóladeildar. Takmarkanir á stöðuveitingavaldi ráðherra tíðkast við háskóla annars staðar og þær þykja eðlileg afleiðing af þeirri kröfu sem vert er að setja fram um sjálfstæði háskólastofnana. Það er mín skoðun að Háskólinn eigi að hafa sem allra mest sjálfstæði í þessu efni. Það er mín skoðun að það sé óeðlilegt að taka fram fyrir hendurnar á Háskólanum að því er varðar mál af þessu tagi og ég tel reyndar að krafan um sjálfstæði Háskólans stuðli að aukinni ábyrgð Háskólans um meðferð þessara mála sem og annarra.
    Ég vil taka það fram að heimspekideild Háskóla Íslands gerði athugasemdir við þetta mál, bæði þegar málið var til meðferðar í háskólaráði og einnig þegar málið hafði verið afgreitt í háskólaráði barst mér bréf frá Málvísindastofnun Háskólans þar sem varað var við því að ganga eins langt og hér er gert ráð fyrir varðandi takmörkun á veitingarvaldi ráðherra.
    Það álitaefni kom upp í sambandi við meðferð þessa máls hvort það stæðist hinar almennu stjórnskipunarreglur hér varðandi ábyrgð ráðherra á embættisathöfnum, hvort það stæðist að takmarka með þessum hætti veitingarvald ráðherra. Niðurstaða varð sú í háskólaráði, þar sem sitja náttúrlega lærðir lögfræðingar m.a., að það væri ekki óeðlilegt að gera tillögu af þessu tagi og hún stangaðist ekki á við grundvallarreglur íslenskrar stjórnskipunar.
    Ég tel ekki ástæðu til þess, herra forseti, að rifja upp ítarlega þá miklu umræðu sem varð um málefni Háskólans á sl. sumri. Ég endurtek það sem ég sagði áðan. Markmiðið með þessu frv. er að stuðla að sem bestu sjálfstæði Háskóla Íslands, flytja valdið þangað sem valdið á að vera, þar sem menn eiga að bera ábyrgðina og m.a. axla ábyrgð á þeim gerðum sínum að velja fólk til verka á þessum vinnustað sem heitir Háskóli Íslands.
    Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.