Háskóli Íslands
Þriðjudaginn 07. febrúar 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Ég er vanur að halda því til haga sem sagt er um mál og m.a. gerði ég það áðan með því að vitna til þeirra athugasemda sem gerðar voru um málið í Háskólanum. Ég var ekkert að tína það hér sérstaklega til, en best að ég geri það út af ummælum hv. síðasta ræðumanns, að þetta mál var samþykkt svo að segja samhljóða, með einu mótatkvæði í háskólaráði þannig að um þetta mál er mjög víðtæk samstaða í Háskóla Íslands.
    Hér er ekki um að ræða neina skyndiákvörðun heldur ákvörðun sem er tekin að vandlega yfirveguðu ráði. Við höfum hugleitt það mjög rækilega með hvaða hætti sé best að koma þessum hlutum fyrir og mín skoðun er sú að það sé best með því að Háskólinn beri sem mesta ábyrgð á þessum málum sjálfur. Með því móti tryggjum við að við eignumst sem bestan háskóla. Ég tel það óeðlilegt fyrirkomulag að verið sé að ráðskast með þau mál á skrifstofum úti í bæ. Það sem vakir fyrir ráðherranum, það sem vakir fyrir ríkisstjórninni er að tryggja og stuðla að sem bestu sjálfstæði Háskólans.
    Varðandi það sem gerðist hér sl. sumar og virðist koma hv. þm. Halldóri Blöndal spánskt fyrir sjónir, þá er það mál sem kennt er við Hannes Hólmstein Gissurarson, vakti miklar deilur bæði í fjölmiðlum og í Háskóla Íslands. Ég taldi það hins vegar ekki við hæfi að ég færi hér úr þessum ræðustól að rekja það mál lið fyrir lið, sérstaklega vegna þess að sá forveri minn sem þar átti hlut að máli á ekki kost á því að svara fyrir sig í þessari deild. Það voru ástæðurnar til þess að ég fór ekki að rekja það mál hér, en ég segi, herra forseti: Ég tel að það sé út af fyrir sig ekkert á móti því að fara yfir þau mál og menn skilji að þarna er visst samhengi á milli. Reynslan kennir að það er nauðsynlegt að hafa inni lagaákvæði af þessum toga, en það stafar ekki eingöngu af þessu máli heldur af almennum ástæðum, þeim að við viljum stuðla að sem bestu sjálfstæði Háskóla Íslands.
    Að lokum, herra forseti, vil ég taka fram og víkja að því að með frv. er prentað sem fskj. álit menntmn. stúdentaráðs Háskóla Íslands þar sem þessari breytingu á 11. gr. laganna er fagnað, en jafnframt vakin athygli á því að í háskólaráði lögðu fulltrúar stúdenta til að úr 11. gr. yrðu felld orðin ,,og eiga fulltrúar stúdenta á deildarfundi þá ekki atkvæðisrétt.``
    Ég taldi rétt að vekja athygli á þessari beinu brtt. stúdenta, en ég flyt málið hér og ríkisstjórnin flytur málið hér að öðru leyti nákvæmlega upp á punkt og prik eins og það kom frá háskólaráði.
    Ég þakka þær umræður sem fram hafa farið um málið og vænti þess að það fái eðlilega og þinglega meðferð hið allra fyrsta.