Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 07. febrúar 1989

     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég ætla að óska eftir því formlega að gert verði hlé á þessari umræðu og þannig að fjh.- og viðskn. deildarinnar gefist tækifæri til þess að fjalla um þær brtt. sem fram hafa komið og mun beita mér fyrir því að haldinn verði fundur í fyrramálið til þess að fjalla um þetta mál.
    Ég óska sem sagt eftir því, herra forseti, að umræðu verði frestað og nefndinni gefist tækifæri til að taka málið til umfjöllunar á ný.