Friðrik Sophusson:
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta fyrir að fá að beina fyrirspurn til hæstv. viðskrh. utan dagskrár. Ég vil jafnframt í upphafi míns máls andmæla úrskurði forseta sem kom fram á síðasta fundi. Ég er ekki með minni fyrirspurn að gera hæstv. viðskrh. ábyrgan fyrir ummælum hæstv. utanrrh. eins og skilja mátti af úrskurðinum. Ástæður fyrirspurnanna, sem ég þarf ekki að lesa, þær hafa þegar komið fram á þskj., eru m.a. eftirgreindar og verð ég að stytta mjög mál mitt.
Í fyrsta lagi: Hæstv. utanrrh. segir álit sitt á mjög áberandi hátt um starfsfólk stofnunar sem heyrir undir annan hæstv. ráðherra og sá síðarnefndi hefur ekki sagt sitt álit.
Í öðru lagi: Ef taka á orð hæstv. utanrrh. alvarlega eru þau stórmál annaðhvort meiðandi fyrir starfsfólkið eða hörð gagnrýni á yfirmenn, ekki síst hæstv. viðskrh. sem er æðsti yfirmaður bankans. Sú spurning vaknar hvort utanrrh. hæstv. telji hæstv. viðskrh. ekki valda verkefni sínu.
Í þriðja lagi: Séu ummæli hins vegar sögð í gamni er ástæða til að það komi fram. Það hefur ekki verið gert, a.m.k. ekki í fréttum af fundinum.
Í fjórða lagi: Yfirlýsingar af þessu tagi geta leitt til þess að almenningur átti sig ekki á því hvenær taka skuli stjórnmálamenn alvarlega og hvenær þeir eru í hlutverki skemmtikrafta. Vitaskuld er gott að geta blandað saman gamni og alvöru í málflutningi, en þá er nauðsynlegt að greinarmunurinn sé skýr, sérstaklega ef í ummælunum felast aðdróttanir í garð tiltekins hóps fólks eða lítilsvirðing fyrir stofnun sem ætlast er til að tekið sé mark á.
Í fimmta lagi: Ummæli af þessu tagi geta skaðað álit á stjórnmálamönnum almennt. Fólk getur álitið að þeir séu hópur gasprara sem ekki eigi að taka mark á, enda fylgja þeir ekki ummælum sínum eftir í verki.
Í sjötta lagi: Þessi fyrirspurn er ekki stórmál í sjálfu sér nema vegna úrskurðar virðulegs forseta og ég er ósammála forseta sameinaðs þings að þinginu sé minnkun að því að ummæli ráðherra utan þings séu rædd á Alþingi. En að öllu samanlögðu þótti mér rétt að gefa hæstv. viðskrh., æðsta yfirmanni Seðlabankans, tækifæri til að segja álit sitt á ummælum hæstv. utanrrh.
Að lokum, virðulegur forseti, vonast ég til og mér þætti vænt um það að hæstv. utanrrh. tæki hér til máls og staðfesti að þessi ummæli hafi átt að vera fyndin og sögð í gamni. Ég veit að hæstv. ráðherra er drengur góður og mundi vaxa af því að taka af allan vafa um það atriði.