Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Ég tók eftir því í gær að hv. málshefjandi, 1. þm. Reykv., taldi að nú stæði einkar vel á að ræða þessa fyrirspurn hans vegna þess að viðstaddir væru, eins og hann sagði, allir sem málið varðaði. Ég er ekki alveg viss um að hv. 8. þm. Reykv. Eyjólfur Konráð Jónsson, sem nú er fjarstaddur, mundi samþykkja þessa skoðun því hann hefur látið í ljós ýmis sjónarmið varðandi starfsemi Seðlabankans sem heppilegra væri að þeir ræddu saman, félagarnir og flokksbræðurnir, sérstaklega.
Það er annars einkennileg árátta, sem virðist vera að heltaka suma þingmenn Sjálfstfl., að þeir eru farnir að þráspyrja einstaka ráðherra um skoðanir þeirra á einhverju sem annar ráðherra kann að hafa sagt. Þetta er að verða eins og leikþáttur unninn upp úr hinni merku bók, Fagra nýja veröld eftir Aldous Huxley. Í þeirri bók voru reyndar þeir sem hugsuðu sjálfstætt sendir til Íslands, en nú virðist vera kominn upp hér á landi vísir að eins konar hugsanalögreglu sem situr sig ekki úr færi að eltast við hugsanir manna og ummæli við einhver tækifæri hér og hvar, ekki með því að tala við þá sjálfa heldur með því að bera fram fyrirspurnir á Alþingi til annarra manna um það hvaða skoðun þeir hafi á annarra hugsunum eða ummælum. Þetta minnir reyndar á rannsóknardómstóla miðalda þegar hér er verið að efna til yfirheyrslna yfir fólki um skoðun þess á skoðunum annarra. (Gripið fram í.) Í þetta sinn, hv. 1. þm. Reykv., er tilefnið einhver myndræn lýsing, nefnd í hita andartaksins af miklum mælskumanni í ham til að vekja athygli á þörfinni fyrir endurbætur í bankakerfinu. ( FrS: Er það svo?)
Hér er ég spurður um tiltekin ummæli hæstv. utanrrh. um starfslið Seðlabankans. Ég skal lýsa því yfir að ég er þeim alls ekki sammála. Ég tel mig hins vegar alls ekki þurfa að halda uppi vörnum fyrir starfslið stofnana sem tilheyra mínu boðvaldi sem ráðherra í hvert sinn sem ég fregna af hnjóðsyrðum í þess garð. Starfsliðið svarar slíkum ummælum sjálft fyrst og fremst með farsælu og vel unnu starfi. Ég tel fyrirspurn hv. fyrirspyrjanda til mín í þremur töluliðum og mörgum stafliðum fyrst og fremst harla kjánalega og varla samboðna virðingu þingmanns á Alþingi Íslendinga.