Vinnubrögð í Seðlabanka Íslands
Miðvikudaginn 08. febrúar 1989

     Þorsteinn Pálsson:
    Frú forseti. Það er auðheyrt á máli hæstv. menntmrh. að hann hefur ekki fylgst með þingstörfum í vetur og ekki hlýtt á ræður sem fluttar hafa verið úr þessum ræðustól og heldur ekki umkvartanir hæstv. forseta sem stundum kvartaði yfir því að sum óheillaverk ríkisstjórnarinnar kæmust ekki fram vegna þess að Sjálfstfl. hefði nokkrar áhyggjur af því hvert stefndi fyrir hagsmunum fólksins í landinu og atvinnufyrirtækjanna.
    Aðeins vegna ummæla hv. 3. þm. Vesturl. vil ég segja að það er ástæðulaust að fara fleiri orðum um þau gífuryrði sem þingmenn og ráðherrar Alþfl. hafa haft til varnar formanni sínum í þessu máli. Þau skýrast auðvitað af því að þeir skammast sín nokkuð fyrir ummælin, eins og reyndar hefur komið fram, því að þeir geti ekki undir þau tekið og er ástæðulaust að fara þar fleiri orðum um. Það sem skiptir auðvitað meginmáli er að hæstv. viðskrh. hefur lýst því yfir að hann er ósammála ummælunum.
    Það er líka rangt að vera að blanda saman hugmyndum manna um hvort þau störf sem unnin eru í Seðlabankanum eigi að vera unnin á vegum ríkisins eða úti á hinum frjálsa markaði. Meðan þar vinna embættismenn íslenska ríkisins eiga þingmenn rétt á því að fá svör við því hvort þeir eru að vinna skyldum sínum samkvæmt eða hvort lýsing hæstv. utanrrh. á við.
    Að lokum þetta. Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir að það var kveðinn upp rangur úrskurður um hvort leyfa ætti þessa fyrirspurn eða ekki. Sá úrskurður sem slíkur var hins vegar ekki lagður fyrir Alþingi heldur var lögð fyrir Alþingi spurningin um hvort ætti að leyfa fyrirspurnina þannig að rökstuðningurinn sem lá fyrir úrskurði forseta var ekki borinn undir atkvæði þingmanna heldur fyrirspurnin sjálf.