Frsm. kjörbréfanefndar (Matthías Bjarnason):
Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og athugað kjörbréf Sigrúnar Helgadóttur sem gefið er út af landskjörstjórn nú 6. febrúar. Þar segir að Sigrún Helgadóttir hafi hlotið við alþingiskosningarnar 21. apríl 1987 kosningu sem 4. varaþingmaður Samtaka um kvennalista í Reykjavík lögmæltan tíma. Forseti hefur greint frá því að varaþingmenn Samtaka um kvennalista hafa ekki getað tekið sæti og því er kjörbréfanefnd sammála um að leggja til að kjörbréf Sigrúnar Helgadóttur verði samþykkt.