Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Sigrún Helgadóttir hefur undirritað drengskaparheit um að halda stjórnarskrána. Hún er boðin velkomin til Alþingis.
Forseti vill hins vegar að gefnu tilefni lýsa þeirri skoðun sinni að engar annir aðrar réttlæti það að kjörinn þingmaður eða kjörinn varaþingmaður sinni ekki þingstörfum. Engin önnur störf og engar annir koma í veg fyrir það þegar þess er þörf. Hið sama gildir vitaskuld jafnt um kjörna þingmenn sem kjörna varaþingmenn. Ég vil minna hv. þingheim á að það eru kjósendur sem ákveða hverjir taka sæti á Alþingi, ekki þingflokkar. Kjörnum þingmönnum og varaþingmönnum hlýtur að hafa verið ljóst þegar til framboðs kom hverjar skyldur fylgdu því ef af kjöri yrði. Þetta vil ég að komi fram að gefnu tilefni.