Seðlabanki Íslands
Miðvikudaginn 08. febrúar 1989

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Hér er til umfjöllunar frv. til l. um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands sem er liður í þeirri heildarstefnu ríkisstjórnarinnar er lýtur að efnahagsaðgerðum. Þó að frv. láti lítið yfir sér, þá er þetta mjög veigamikið plagg og þær forsendur er liggja að baki þessu frv.
    Það eru nokkur atriði sem ég hefði viljað fjalla um og leggja jafnframt spurningar fyrir hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra í þessu sambandi. Einnig hefði ég talið æskilegt að fulltrúar sérstaklega Alþb. væru viðstaddir við umfjöllun mína á þessu máli eða hæstv. ráðherrar yfirleitt og gera sér far um að hlusta á mál þingmanna hér í þessu máli sem öðrum. Það væri æskilegt vegna þess að í þessu frv. felst ákveðin stefnumörkun sem er svo veigamikil, eins og kom fram í ræðu hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra, að það væri mjög þýðingarmikið að fá úr því skorið strax við 1. umr. hvort þm. Alþb. og hæstv. ráðherrar, sem eiga sæti í þessari deild, séu samþykkir þeirri stefnumörkun sem í því felst og því sem fram kom hjá hæstv. ráðherra.
    En áður en ég vík að því vil ég segja það í upphafi míns máls að ef maður lítur á þann þátt í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í sambandi við efnahagsmál og úrlausn þeirra, þá kemur fram mjög mikil þversögn, sérstaklega í þeim atriðum er lúta að peninga- og vaxtamálum. Þessi þversögn felst í því, og gengur ekki alveg upp hjá mér, að á sama tíma sem hæstv. ríkisstjórn er að tala um það að hleypa erlendum aðilum inn í íslenska bankastarfsemi, þá er verið að taka ákvarðanir eða leggja til að takmarkanir verði settar á innlenda aðila með þeim hætti að þegar fjallað er um þann þátt sem kom fram í ræðu hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra þar sem hann sagði m.a., að vísu ekki alveg orðrétt en ég skildi þetta þannig, að nauðsynlegt væri að fá erlenda aðila inn í íslenska bankastarfsemi og þar með erlend áhrif og erlent fjármagn til þess að auka samkeppnina á íslenskum peningamarkaði.
    Ég ætla ekki að draga úr því atriði út af fyrir sig að það sé mikil þörf á að auka samkeppni á íslenskum peningamarkaði, m.a. til þess að reyna að ná niður vaxta-"nívóinu`` sem er mjög brýnt, ég tek undir það sem kom fram í ræðu ráðherra um það efni. En það gengur ekki alveg upp hjá mér að á sama tíma sem það er markmið hæstv. ríkisstjórnar skuli hún leggja kvaðir á innlenda aðila sem gætu aukið þessa samkeppni, en hins vegar á að leita sáluhjálpar erlendis frá og þá með þeim hætti sem er mjög stefnumarkandi hvað framtíðina áhrærir.
    Ég vil þess vegna beina því til virðulegs forseta hvort ekki væri unnt að fá hér alla vega einhvern þingmann Alþb. og helst ráðherra til þess að hlýða á framhald míns máls. ( Forseti: Ég hef óskað eftir þessu. Ég vænti þess að hæstv. menntmrh. sé að koma.) Já. Ég vona að það taki ekki mjög langan tíma, en þar sem ég veit að hæstv. menntmrh. er enginn samkeppnismaður, eins og hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra er nú í hjarta sínu, maður sem vill

auka frelsið, ég efast ekkert um það, og vill koma hér á, eins og hann nefndi áðan, virkum markaði í peningamálum, þá vil ég undirstrika það sem ég sagði áðan að innlendir aðilar verða þá að hafa sama frelsi og sömu möguleika, búa við sömu skilyrði og þeir erlendu aðilar hafa sem væntanlega eiga að koma hér inn í landið til að auka samkeppnina. Þetta á við hvort sem um er að ræða einstaklinga, þ.e. Íslendinga sjálfa, íslensk fyrirtæki, íslenska banka, íslenskar fjármálastofnanir, lífeyrissjóði eða verðbréfasjóði.
    Stefna þessarar ríkisstjórnar eins og hún er lögð fram gerir markaðinn ekki virkari að mínu mati nema því aðeins að því skilyrði verði fullnægt að íslenskir aðilar búi við sömu aðstæður og hinir erlendu sem hér eiga að koma inn í landið til að auka samkeppnina. Allar aðgerðir þessarar ríkisstjórnar stefna að því að þrengja mjög hag sérstaklega einkabanka. Þá er að því stefnt, þó það sé ekki sagt með berum orðum, að þrengja mjög hag annarra fjármálastofnana og einnig er að því stefnt, greinilega, að reyna að eyðileggja verðbréfasjóði. Og það er einnig að því stefnt, að því er virðist, ég tek ekki sterkar til orða á þessu stigi, að reyna að setja hömlur eða þvinga lífeyrissjóði landsmanna til viðskipta með einhverjum óræðum hætti sem ég veit ekki hver er, en kemur fram m.a. í viðtali við hæstv. fjmrh. í Alþýðublaðinu í morgun. Þar er það boðað að hann muni hafa í frammi aðgerðir, sem gera það að verkum að lífeyrissjóðirnir verði sko að hlýða því sem ríkisstjórnin ætlast til af þeim, til viðbótar þeirri þvingun sem felst í því að lífeyrissjóðir verða að afhenda 55% af ráðstöfunarfé sínu inn í húsnæðismálakerfið, að vísu á grundvelli samkomulags aðila vinnumarkaðarins og með löggjöf frá hinu háa Alþingi sem er að minni hyggju afar óæskileg, þar sem þar er með óeðlilegum hætti gripið inn í það sem gæti haft gífurlega mikil áhrif á það sem er markmið hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra, að koma niður vöxtunum.
    Ég er ekki í nokkrum vafa um það að ef t.d. allt það fé sem lífeyrissjóðir landsmanna hafa til ráðstöfunar almennt færi inn á markaðinn með eðlilegum hætti í gegnum bankakerfið, fjármálastofnanir og annað, þá hefðu vextir lækkað mjög á hinum íslenska peningamarkaði fyrir löngu síðan. En sú óeðlilega ráðstöfun, sem ég gagnrýndi á sínum tíma, að binda fé með þessum hætti, þ.e.
að ,,kanalísera`` það inn í húsnæðismálakerfið með þessum hætti. Annars vegar þurfti að fullnægja þeirri kvöð sem fylgir lífeyrissjóðunum, að þeir eiga að afmarka sem mest tekjur sínar af lánasatarfsemi, á sama tíma sem ríkisvaldið gerir samning við aðila vinnumarkaðarins um mun lægri vexti. Þetta er auðvitað mjög óeðlilegt, sérstaklega þegar maður hefur í huga hina miklu fjármuni sem hér er um að ræða. Ég er því ekki í nokkrum vafa um það að hefði þetta verið gert þannig að bankar og fjármálastofnanir hefðu fengið þetta fé til ráðstöfunar, m.a. til þess að lána að sjálfsögðu inn í húsnæðismálakerfið, þá væru vextir mun lægri og það fyrir tilverknað einmitt þess sem hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra var að leggja

áherslu á, virkari samkeppni á markaðnum.
    Varðandi samþykkt ríkisstjórnar um peninga- og vaxtamál, þá er það athyglisvert að í þessari samþykkt togast á annars vegar það markmið hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra að reyna að auka virknina á markaðnum á sama tíma sem stefna annarra, sem ég vil ekki ræða um á þessu stigi hverjir eru, beinist að því að keyra niður þessa virku samkeppni sem hæstv. ráðherra vill stefna að. En hvað sem því líður, þá hefur í tengslum við þau frumvörp sem m.a. þetta frv. er hluti af, í sambandi við ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, verið gefin út yfirlýsing sem allir flokkar, sem nú standa að ríkisstjórninni, þ.e. Framsfl., Alþfl. og Alþb., standa að, sem felur það í sér, jafnframt því atriði sem ég gat um áðan, að það er stefnt í átt til frelsis á sama tíma sem einnig er stefnt í átt til miðstýringar. Þá kemur það atriði inn í, sem er þversögn á allar þessar aðgerðir, að þegar innlendum aðilum eru settar skorður um hvernig þeir geti hagað sínu máli, þá á að leysa vandamálin með því að hleypa inn erlendum aðilum og framkalla þá svokallaða samkeppni. Í þessu er auðvitað gífurleg þversögn þegar maður hefur það í huga að auðvitað verða innlendir aðilar líka að hafa frelsi til samkeppni eins og hinir erlendu ef við ætlum að ná því markmiði sem hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra stefnir að og fram kemur að hluta til í þessu plaggi.
    Í samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál segir m.a. að ríkisstjórnin feli Seðlabankanum, en um þann banka snýst það frv. sem hér er til umræðu, að ríkisstjórnin feli Seðlabankanum að stuðla að því að vextir á lánamarkaðnum lagi sig að vöxtum á ríkisskuldabréfum að teknu tilliti til áhættu og annarra atriða sem máli skipta. Nú verður það ekki skilgreint nánar hvernig á að meta þetta atriði sem heitir ,,að teknu tilliti til áhættu`` þannig að í því felst auðvitað ákveðið fyrirheit eða viðurkenning á því að vextir hljóti að vera mismunandi og það sé ekki alveg öruggt að það geti orðið samræmi á milli þessara vaxta eða þess markmiðs sem þarna er sett fram. Raunverulega segir þessi setning manni það að það er tilhneiging og meira en tilhneiging, það er yfirlýstur tilgangur ríkisstjórnarinnar að miðstýra sem mestu fjármagni til ríkissjóðs, þ.e. að reyna að útiloka það að það fjármagn sem atvinnulífið hefur þörf fyrir sem og einstaklingar fari í það að byggja upp íslenskt atvinnulíf og styrkja þann efnahagslega afkomugrundvöll sem þjóðin býr á. Það virðist enn þá vera stefna þessarar ríkisstjórnar að ríkið og það sem að ríkisvaldinu snýr skuli hafa forgang á meðan unnt er, því að það kemur auðvitað að skuldadögum. Þegar búið er að svelta atvinnulífið, þegar búið er að taka fjármunina af einstaklingunum, þá mun það auðvitað koma af sjálfu sér að það mun vanta fé til þarfa ríkisins.
    Í þessari yfirlýsingu kemur einnig fram að verði aðilar ekki við því að beina þessu fjármagni til ríkisins, þá muni ríkissjóður neyta stöðu sinnar sem langstærsti lántakandi á innlendum fjármagnsmarkaði til að ná fram hóflegum raunvöxtum af

ríkisskuldabréfum, m.a. þeim sem lífeyrissjóðir kaupi af ríkissjóði og Byggingarsjóði ríkisins jafnframt því sem dregið verður úr lánsfjárþörf ríkissjóðs með ýtrasta aðhaldi að ríkisútgjöldum. Það hefur ekki komið fram, hvorki í ræðu hæstv. forsrh. né ræðu hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra hvað átt sé við með ,,ýtrasta aðhaldi`` í sambandi við ríkisútgjöld. Hins vegar fer það ekki á milli mála að í því felst ákveðin hótun að ríkissjóður, sem langstærsti lántakandi á innlendum fjármagnsmarkaði, muni neyta stöðu sinnar ef aðilar hlýða ekki þeim fyrirmælum sem hæstv. ríkisstjórn metur sem hóflega raunvexti, þ.e. hvernig ríkisstjórnin kemur sér niður á það að ákveða hóflega raunvexti af ríkisskuldabréfum sem á að vera hin rétta og væntanlega heilbrigða viðmiðun sem aðilar eiga að taka mið af.
    Ég get út af fyrir sig fallist á það sjónarmið að auðvitað reyni ríkissjóður eða ríkisstjórnin að framkalla hóflega vexti í sambandi við sín viðskipti og aðilar reyni auðvitað að aðlaga sig þessum markmiðum. En þá er mjög æskilegt og nauðsynlegt að vita strax hvað átt sé við með hóflegum raunvöxtum, sérstaklega þegar sagt er að ríkissjóður muni ,,neyta stöðu sinnar`` sem mér finnst afar óviðeigandi orðalag svo að ekki sé meira sagt. Síðan segir í samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál:
    ,,Seðlabankanum er í samráði við viðskrn. falið að veita nafnvöxtum lánastofnana sérstakt aðhald á umþóttunartímabili í kjölfar verðstöðvunar þannig að samræmi verði milli raunávöxtunar verðtryggðra og óverðtryggðra
lánasamninga.``
    Mér er ekki alveg ljóst, og ég vil beina því til hæstv. viðskrh. hvað átt er við með orðunum ,,sérstakt aðhald á umþóttunartímabili``. Þá skil ég heldur ekki þegar verið er að tala um að í kjölfar verðstöðvunar skuli þetta gert, sem ég las hér upp áðan, því að ég verð nú að segja það eins og er, og ég held að þjóðin öll sé mér sammála um það atriði, að ég hef ekki orðið var við það að það hafi verið virk verðstöðvun í landinu síðustu mánuðina. Ég hef ekki orðið var við það að ríkisvaldið eða ríkið sérstaklega hafi leitast við að tryggja það að það hafi verið verðstöðvun í sambandi við þá þjónustu og þau gjöld sem ríkisvaldið eða ríkisstjórnin getur haft áhrif á og ákveðið. Eftir því sem ég best veit hefur ríkisstjórnin því miður ákveðið og samþykkt verulegar útgjaldahækkanir í gegnum verðhækkanir á vörum og þjónustu, þar á meðal á þjónustu sem ríkið hefur vald yfir. Ég ætla ekki að tíunda það í einstökum atriðum í hverju þessi atriði eru fólgin. Það þekkja allir hv. þm. En þó er eitt dæmi sem sker sig alveg sérstaklega úr. Það er hin gífurlega mikla hækkun sem hefur orðið á bensíni með einhliða ákvörðunartöku ríkisstjórnarinnar sem brýtur auðvitað algerlega í bága við þá verðstöðvunarstefnu sem hún kveðst fylgja. Nema það sé markmið ríkisstjórnarinnar að beita allt öðrum og harðari hótunum eins og fram kemur í frv. til laga, þ.e. að þeir sem ekki lúti þessu úti í hinu

frjálsa atvinnulífi skuli eiga í vændum refsingar sem ekki ná til þeirra sem bera ábyrgð á ríkisvaldinu.
    Með leyfi forseta ætla ég að halda áfram að fjalla um samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál sem lýtur einnig að þessum lögum. Ég vil spyrja hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra hvað átt sé við með orðunum: ,,Þá verður laust fé innlánsstofnana skilgreint með markvissari hætti en verið hefur og kveðið á um að stærsti hluti innlána Seðlabanka innheimtur af innlánastofnunum renni í ríkissjóð.`` Að vísu kom hv. þm. Halldór Blöndal nokkuð inn á þetta atriði en ég hlýt að óska eftir því eins og hann að fá skýrt fram hvað átt er við og um hvaða upphæðir sé að ræða. Í mínum huga er það þannig, eins og hjá hv. þm. Halldóri Blöndal, að mér virðist hér vera um nýja skattheimtu að ræða, að vísu óbeina en ákveðna tegund af skattheimtu, sem mun koma niður á lántakendum áður en yfir lýkur. Þó það gerist ekki í fyrstu umferð met ég það eins og hv. þm. Halldór Blöndal, þ.e. að þetta muni hafa hækkandi áhrif á vaxtalíf í landinu og leysi ekki það vaxtavandamál sem er til umræðu og hefur verið til umræðu bæði af hálfu stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga.
    Síðan kemur það atriði sem ég tel mjög alvarlegt og brýtur raunverulega í bága við þá stefnu sem síðar kemur fram í þessari samþykkt ríkisstjórnarinnar varðandi það að erlendir bankar komi til skjalanna til að auka samkeppninna. Þar segir, með leyfi forseta: ,,Breyttar reglur um bindi- og lausafjárskyldu munu jafna starfsskilyrði innlánsstofnana og koma bönkum sem þjóna útflutningsgreinum til góða. Þær eru jafnframt forsenda þess að unnt verði að beita bindiskyldu eða hliðstæðum kröfum á aðrar fjármálastofnanir en banka og sparisjóði til þess að jafnræðis sé gætt.`` Ef ég skil þessa setningu rétt, hæstv. bankamálaráðherra leiðréttir ef svo er ekki, þá þýðir þetta á mæltu máli að styrkja á stöðu ríkisbankanna enn betur og veikja stöðu einkabankanna. Með ákveðnum hætti er sem sagt verið að ráðast á einkabankana, þrengja hag þeirra sem og einkarekstrar og annarra aðila sem þurfa að njóta viðskipta við einkabankana. Ég tel þetta mjög alvarlegt mál og ég trúi því ekki að hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra, sem ég tel vera mann frjálsrar samkeppni, muni láta það viðgangast að stefna sem þessi verði framkvæmd vegna þess að hún hlýtur m.a. að fela það í sér að fæla erlenda einkabanka frá því að koma inn í það peningakerfi sem þessi ríkisstjórn er að reyna að búa til. Ef hæstv. ráðherra tekst ekki að koma í veg fyrir þessa fyrirætlun ríkisstjórnarinnar, eins og ég skil hana, er þetta raunverulega marklaust plagg.
    Þá kem ég að því sem ég vil segja að feli í sér stóra þversögn við allt sem á undan er komið. Í samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál segir, með leyfi forseta: ,,Ríkisstjórnin mun á næstunni kynna ákveðnar tillögur um samruna lánastofnana hér á landi og áætlun um aðlögun íslenska lánamarkaðarins að breyttum aðstæðum í umheiminum.

Í þessu felst m.a. að íslensku atvinnulífi verði tryggð sambærileg aðstaða á fjármagnsmarkaði og helstu viðskiptalöndum. Markmiðið er að stuðla að lækkun fjármagnskostnaðar fjölskyldna og fyrirtækja með aukinni samkeppni og hagræðingu í bankakerfinu og nánari tengslum innlends lánamarkaðar við fjármagnsmarkaði í nágrannalöndunum.`` Ég get út af fyrir sig tekið undir það markmið að Íslendingar tengist vestrænum heimi með ákveðnum takmörkunum í sambandi við banka- og peningamál. En mér er spurn: Hefur Alþb. raunverulega undirritað þetta plagg eða er þetta tóm markleysa, sjónleikur?
    Ég vil einnig undirstrika að ef þetta markmið á að ná fram að ganga hljóta íslenskir aðilar að krefjast sama réttar og þeir aðilar hafa sem koma til með að keppa við þá. Og það vitum við, hæstv. bankamálaráðherra, ég og flestallir hv. þingmenn sem hér eru, að bankar í nágrannalöndunum búa við allt annað frelsi og allt önnur skilyrði en íslenskir bankar. Þar er það í stórum dráttum
samkeppnin sem ræður vaxta-"nívóinu`` á hverjum tíma en ekki aðgerðir stjórnvalda, eins og hér er verið að boða.
    Þarna er því verið að boða ákveðna tegund af frelsi sem við sjálfstæðismenn getum tekið undir að vissu marki en með fyrirvara þó. Maður þarf að gera sér grein fyrir því hvað felst á bak við þessar setningar og mun ég gera það í mjög ítarlegu máli hér á eftir eða síðar í umræðunni. Ég vil halda áfram, með leyfi forseta, að undirstrika þennan þátt sem er náttúrlega hrein frjálshyggja eins og við sjálfstæðismenn höfum skilið hana og við höfum raunar verið úthrópaðir fyrir af hálfu Alþb. og þá sérstaklega af hæstv. menntmrh. Kem ég þá að því atriði sem ég veit að gleður hæstv. menntmrh. fyrir það að ég skuli hafa tekið svona vel eftir. Með leyfi forseta ætla ég einmitt einnig að lesa þann þátt upp úr samþykkt ríkisstjórnarinnar: ,,Heimildir íslenskra fyrirtækja til þess að taka lán erlendis með ríkisábyrgð eða ábyrgð banka eða sjóða í eigu ríkisins verða takmarkaðar en hins vegar verða heimildir fyrirtækja til að taka erlent lán á eigin ábyrgð rýmkaðar.`` Síðan segir, með leyfi forseta: ,,Á næstu missirum verða reglur um fjármagnshreyfingar og viðskipti með fjármálaþjónustu milli Íslands og annarra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráðherranefndar Norðurlanda um efnahagsáætlun Norðurlanda 1989 til 1992. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að búa íslenska bankakerfið undir þær breytingar sem munu fylgja sameinuðum fjármagnsmarkaði Evrópu, m.a. með því að auka hagkvæmni þess þannig að það geti staðist samkeppni við erlenda banka hvað varðar vaxtamun, tryggingar o.fl. Í framhaldi af því verður m.a. kannað hvort heimila megi viðurkenndum erlendum bönkum starfsemi hér á landi.``
    Þetta er að minni hyggju hámark frjálshyggjunnar í peninga- og vaxtamálum og ég óska hæstv. menntmrh. sérstaklega til hamingju með það að hann, ásamt meðráðherrum sínum úr Alþb., skuli hafa samþykkt þetta sem stefnu núv. ríkisstjórnar í peninga-

og vaxtamálum. Fyrir þessu eru ótvíræð skjöl frá sjálfri ríkisstjórninni sem staðfesta þetta. Nú er það annað mál hvernig við Íslendingar ætlum að fjalla um þetta frelsi. Veldur hver á heldur. Ég verð að segja það að ekki er ég sannfærður af upphafi samþykktar ríkisstjórnarinnar í þessum málum.
    Hæstv. viðskrh. hefur setið mjög vel í þingsal og hlýtt á mál manna, og er það skiljanlegt því hann gerir sér grein fyrir hvað verið er að fjalla um mikilsvert atriði, stefnumarkandi atriði, sem er gífurlega þýðingarmikið fyrir framtíð þjóðarinnar. Hann skilur það. Þess vegna situr hann og hlustar á hv. þingmenn sem og hæstv. menntmrh. gerir einnig. ( EG: Nú er formaður Sjálfstfl. búinn að segja að þessar aðgerðir séu minna en ekki neitt.) Ég var að lýsa samþykkt ríkisstjórnarinnar og forsendum þessarar aðgerðar. Hv. 3. þm. Vesturl. hefur ekki alveg skilið það sem ég sagði áðan, þ.e. að fyrri hluti samþykktar ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál er 30 árum á eftir tímanum og felur í sér takmarkanir á frelsi og samkeppni en skapar ekki virkni á peningamarkaðnum. Í niðurlaginu held ég hins vegar að hljóti að felast grundvallarstefna hæstv. viðskipta- og bankamálaráðherra, alþýðuflokksmannsins Jóns Sigurðssonar. Ég var að undirstrika að þetta atriði felur í sér frjálshyggju. En það þýðir ekki að vera með tvær stefnur í sama plaggi. Maður stefnir ekki í tvær áttir í einu. Annaðhvort fer maður til hægri eða vinstri en ekki í báðar áttir í einu, hv. þm. Eiður Guðnason. Það er það sem ég er að tala um. ( EG: Er það eina leiðin fram á við?) Það er það sem ég er að tala um. Ég vildi, hæstv. viðskrh., gjarnan fá nánari skýringar á því hvernig hann skilur þetta plagg, hvort það eigi að taka meira mark á þessum hluta, hvort þetta sé raunveruleg stefna sem eigi að framkvæma eða hvort það sem er á undan og ég vil líta á sem formála sé aðalatriðið. Þetta er grundvallaratriði.
    Ég endurtek að það er gott til þess að vita fyrir okkur sem höfum viljað vera tengd vestrænum heimi að Alþb. skuli hafa fallist á það sem hefur lengi verið stefna okkar sjálfstæðismanna, þ.e. að eiga virkt samstarf við vestrænan heim í atvinnu- og efnahagsmálum sem öðrum. (Gripið fram í.) Rétt, hv. þm. Eiður Guðnason, vestræn samvinna eins og hún hefur verið hvað best í sambandi við samstarf okkar og störf í Atlantshafsbandalaginu. ( Menntmrh.: Hefur NATO eitthvað með þetta að gera?) Já, hæstv. ráðherra, NATO kemur nefnilega inn í þetta. Það vill svo til að hv. þm. Eiður Guðnason kannast við þetta. Við höfum starfað saman á þeim vettvangi með mjög góðum árangri, eða allt frá 1962 og þá fyrst sem ungir áhugamenn utan þings í góðu samstarfi við skynsama menn í Framsfl., og þeir voru það nú ekki allir á þeim tíma. Sú stefna varð ofan á, en einmitt innan Atlantshafsbandalagsins er fjallað um fleira en hernaðarmál eins og hæstv. menntmrh. veit. Þar er mjög veigamikill þáttur sem lýtur að efnahagsmálum, vísindamálum og yfirleitt öllum hugsanlegum samskiptamálum Atlantshafsbandalagsríkjanna og þar á meðal eru þessi mál sem við erum að fjalla um nú.

Þetta er liður í samstarfi vestrænna ríkja og það er gott til þess að vita að hæstv. menntmrh. er hættur að lesa Þjóðviljann eins og hann sjálfur skrifaði jafnvel um tíma, ég tala ekki um hvernig hann skrifaði í hann áður en hann kom þar til skjalanna.
    En virðulegur forseti. Ég sé að klukkan er að verða sjö og ég er rétt
hálfnaður í minni ræðu. Ég á eftir að víkja að mjög veigamiklum atriðum vegna þess að það vill svo til að ýmsir eru töluvert lesnir í þessum fræðum, bæði hvað varðar innlendan peningamarkað og bankamálastarfsemi sem og einnig því sem lýtur að Evrópubandalaginu, EFTA, Norðurlöndunum og hvernig Íslendingar hugsanlega tengjast þessu, ef maður leggur þann skilning í stefnu ríkisstjórnarinnar sem þetta plagg gefur tilefni til. Um það vildi ég, virðulegi forseti, fá að ræða alveg sérstaklega og tekur það svona einn til tvo tíma því að ég mun að sjálfsögðu styðjast við plögg og staðreyndir sem skipta miklu máli í sambandi við þessi mál. ( Forseti: Hefur hv. ræðumaður ekki tök á að ljúka sinni ræðu fyrr?) Nei, það hef ég ekki. Ég þarf svona einn til tvo tíma minnst. ( Viðskrh.: Hv. þm. hafði nú lofað stuttri ræðu og málefnalegri.) Þetta er málefnaleg ræða. ( Viðskrh.: Ég sagði ekki að hún væri það ekki.) Ég held að hæstv. ráðherra muni verða mjög glaður þegar minni ræðu lýkur, virðulegi forseti, því ég lofa að þetta verði mjög fræðileg, hlutlaus ræða. ( Menntmrh.: Ætlarðu ekki að hafa eitthvað um vestnorræna þingmannasambandið í þessu?) Ég er nú ekki í því, en hins vegar hef ég setið í ýmsum nefndum varðandi Evrópubandalagið fyrir verkalýðshreyfinguna og í ráðgjafarnefnd EFTA fyrir hönd þjóðarinnar o.fl. þannig að ég vona að ég geti talað með þeim hætti að allir aðilar verði ánægðir með mínar skýringar og hugrenningar í þessu máli. ( Forseti: Ef hv. ræðumaður óskar eftir að gera hlé á ræðu sinni mun verða orðið við því. Ef hann gæti hins vegar lokið því væri það gott.) Mér virðist, virðulegi forseti, að þetta taki einn til tvo tíma. ( Forseti: Þá mun vart verða hægt að ljúka því í kvöld.)