Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
    Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi, kjörbréf Björns Grétars Sveinssonar, 2. varamanns Alþb. í Austurlandskjördæmi sem tæki sæti Hjörleifs Guttormssonar, 2. þm. Austurl.
    Kjörbréfanefnd hefur athugað þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.