Rækjuveiðar og vinnsla
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegur forseti. Ég vil minna hv. þm. Halldór Blöndal á það út af því sem hann sagði að ég held að það sé ekki hægt að koma á opinberri forsjá í þessum málum. Það sem einkum hefur verið gagnrýnt í sambandi við rækjuvinnsluna er að nokkrir aðilar á Suðurnesjum og á vestanverðu landinu hafa hafið rækjuvinnslu, þeir staðir á Norðurlandi sem ekki komu nálægt því áður.
    Það hefur verið reynt eftir fremsta megni að halda mönnum í skefjum í þessu sambandi og reynt að koma mönnum saman á viðkomandi stöðum en ekki talið fært að neita þeim aðilum, sem eiga allmörg skip svo að dæmi sé nefnt, að vinna afla af sínum eigin skipum, t.d. í byggðunum á Suðurnesjum, ef þeir hafa haft aðstæður til þess. Þetta hefur fyrst og fremst verið gagnrýnt á sama tíma og m.a. á Suðurnesjum hefur verið erfitt atvinnuástand. Ég bið menn að hafa í huga að þarna verður að rata einhvern meðalveg, en við það að úhtluta leyfi er ábyrgðin að sjálfsögðu ekki tekin af þeim aðilum sem fjárfesta og taka lán til þess. Til þess eru lögin ekki ætluð að hér sé um að ræða algerlega opinbera forsjá og þeim hefur ekki verið beitt í þeim anda.