Herferð gegn kinda- og hrossakjöti
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
    Hæstv. forseti. Sú fsp. sem hér er á dagskrá er flutt í nóvembermánuði eftir allharðar umræður um ummæli hæstv. viðskrh. um viðskiptaþvinganir gegn sölu á afurðum landbúnaðarins eða eins og hann orðaði það: á kjöti af dýrum sem alin væru á ofbeittu landi. Fsp. hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Hefur forsrh. beint þeim tilmælum til viðskrh. að hann dragi til baka hótun sína um að efna til herferðar meðal almennings um að hann hætti að kaupa afurðir sauðfjár og hrossa?``
    Nú hygg ég sem betur fer að það sé einsdæmi að viðskrh. hóti viðskiptaþvingunum gegn sölu á innlendri framleiðslu í eigin landi og viðbrögð við þessum hótunum voru býsna hörð. Nú er kunnugt að hæstv. forsrh. hefur lýst því yfir að það sé enginn ágreiningur á milli Framsfl. og Alþfl. í landbúnaðarmálum. Þessi yfirlýsing liggur fyrir. Á hinn bóginn er mér forvitni á að vita hvort ekki sé ágreiningur á milli Framsfl. og Alþfl. um viðskiptamál, en hér er fjallað um viðskiptamál.
    Ef hæstv. forsrh. er sammála þeim yfirlýsingum sem hæstv. viðskrh. hefur látið sér um munn fara er eðlilegt að hann hafi engin afskipti af þessum ummælum síns meðráðherra. En sé svo að hæstv. forsrh. sé þessum ummælum andvígur og hann vilji ekki sem forsrh. í sinni ríkisstjórn láta þessi ummæli koma út sem andlit ríkisstjórnarinnar í viðskiptamálum um meðferð á sölu innlendrar framleiðslu ætti hann að óska eftir því að hæstv. viðskrh. drægi ummælin til baka. Því er þessi fsp. hér flutt.