Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir hans svör svo langt sem þau náðu. Hann sagði að þau ummæli sem hér er vitnað til hefðu verið flutt af alþýðuflokksmanninum Jóni Sigurðssyni á flokksþingi Alþfl., en þessi alþýðuflokksmaður, Jón Sigurðsson, er hæstv. viðskrh. í núverandi hæstv. ríkisstjórn. Það sem hæstv. viðskrh. segir, hvort sem hann gerir það á opinberum fundi Alþfl. eða annars staðar, mælir hann sem viðskrh. þjóðarinnar.
Ég fagna að vísu þeim ummælum sem hæstv. forsrh. lét sér hér um munn fara, hann hvetti til þess að Íslendingar keyptu sem mest af innlendri framleiðslu, en mér finnst það skylda forsrh. að taka af öll tvímæli fyrir hönd sinnar ríkisstjórnar að ríkisstjórnin sem heild vilji stefna í þá átt sem hæstv. forsrh. hefur hér lýst og með tilliti til þess væri alger nauðsyn að fara fram á það við hæstv. viðskrh. að hann dragi sín ummæli til baka ella hljóti að vera grunsemdir um að yfirlýsing forsrh. sé ekki jafnheil fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og hann vildi vera láta.
Ég ætla ekki að efna hér til frekari umræðna um þetta mál, aðeins segja að ummæli af þessu tagi hvar sem þau eru flutt af ráðherra í ríkisstjórn Íslands eru fordæmanleg og eru þess efnis að forsrh. í ríkisstjórn þeirri sem sá ráðherra starfar í á ekki að sitja undir því að þau séu ekki dregin til baka.