Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegi forseti. Á þskj. 400 er fsp. í fjórum liðum varðandi ráðstafanir til stuðnings loðdýraræktinni og ég hyggst svara í raun tveimur eða jafnvel þremur þeirra í einu, þ.e. hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar af hálfu stjórnvalda til þess að bregðast við vanda loðdýraræktar í landinu og í öðru lagi hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin hyggist gera á næstunni og 4. fsp.: Mun ráðherra beita sér fyrir því að Framleiðnisjóður greiði styrki vegna búháttabreytinga úr refarækt í minkarækt að fullu á árinu 1989?
Svarið við öllum þessum spurningum er að hluta til að finna í ákvörðun sem ríkisstjórnin tók hinn 20. jan. sl. um frekari aðgerðir til stuðnings loðdýraræktinni og birst hafa með fréttatilkynningu frá landbrn. Þær ráðstafanir helstar voru þar ákveðnar til viðbótar þeirri endurgreiðslu á söluskatti sem gerð var að hluta til fyrir áramót á árinu 1988 og haldið verður áfram á þessu ári að lækka tilkostnað við framleiðslu skinna með hliðsjón af því að greiða niður fóðurkostnaðinn um 3 kr. á kg miðað við eðlilega fóðurnotkun. Þessar ráðstafanir svara til nálægt 55 millj. kr. upphæð á árinu og ættu að nema um 30--38% af því verðfalli sem loðdýraræktin hefur tekið á sig núna á undanförnum 2--3 árum. Sem sagt rúmur þriðjungur eða svo af verðfalli ætti að vera bættur með þessum aðgerðum til að lækka framleiðslukostnaðinn.
Í öðru lagi var Framleiðnisjóði falið að taka lán allt að 60 millj. kr. til skuldbreytingar og hagræðingaraðgerða og til endurskipulagningar á fjárhag bænda þeirra sem verst eru staddir með lausaskuldir.
Í þriðja lagi verður Framleiðnisjóði gert kleift með frestun afborgana á lánum hjá Seðlabanka að greiða að fullu út framlög til búháttabreytinga á þessu ári. Það svarar 4. spurningunni. Það er að vísu ekki mjög stór upphæð, í nágrenni við 20 millj. kr., en ætti að auðvelda þeim sem vilja færa sig úr refarækt yfir í minkarækt að gera það á árinu.
Þá er í þessari ákvörðun rætt um að Stofnlánadeild verði falið að fresta afborgunum lána hjá þeim bændum sem þess þurfa nauðsynlega með og í tengslum við aðgerðir til að endurskipuleggja fjárhag þeirra og taka á lausaskuldavanda bænda.
Að síðustu er í samþykktinni vikið einmitt að því sem þriðja spurningin snýst um, þ.e. viðmiðunarbústærð miðað við lánveitingar úr Stofnlánadeild. Það er mat margra sem til þekkja að þar þurfi að grípa til breytinga. Sérstaklega er það viðmiðunarbústærð í minkarækt þar sem það virðist sýna sig að svonefnt viðmiðunarbú er ónóg stærð, ekki rekstrarlega möguleg eining og þar þurfi að færa mörkin eitthvað upp á við, e.t.v. um einar 200 minkalæður eða svo.
Þessar ráðstafanir eru nú að koma til framkvæmda stig af stigi. Fóðurniðurgreiðslan er þegar að koma til framkvæmda. Ég geri ráð fyrir því að á næstu dögum
verði skipuð nefnd til að sjá um þær skuldbreytingaraðgerðir eða hafa hönd í bagga með þeim skuldbreytingaraðgerðum sem Framleiðnisjóði er ætlað að aðstoða við og aðrar aðgerðir sem þessu tengjast eru þegar í undirbúningi. Ég hef rætt við og mætt á fund hjá stjórn Framleiðnisjóðs og fari yfir þann hluta málsins sem snýr að Framleiðnisjóði í þessu sambandi og mun væntanlega eiga sambærilegan fund með stjórn Stofnlánadeildar á næstunni.
Örfá orð um þessar aðgerðir í heild sinni. Það var mat stjórnvalda að hér væru svo miklir hagsmunir í húfi að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða til að afstýra því hruni sem ella virtist yfirvofandi í þessari atvinnugrein og gefa greininni frekari reynslutíma. Þar eru í húfi a.m.k. 250--300 störf í landinu. Fjárfesting í þessari grein nálgast nú 2 milljarða og miðað við eðlilegt skinnaverð er hér á ferðinni útflutningsverðmæti á bilinu 300--500 millj. kr. þannig að það er nokkuð í húfi að afstýra því að þessi unga grein sem menn bundu og binda út af fyrir sig enn vonir við hrynji vegna þeirra miklu erfiðleika sem hún hefur orðið fyrir eða mætt á undanförnum árum og stafa fyrst og fremst af því mikla verðfalli sem orðið hefur á framleiðsluvörunni. Einnig hefur mikill fjármagnskostnaður leikið þessa grein e.t.v. verr en flestar aðrar þar sem hún er öll ný með mikla fjárfestingu og byggir ekki á neinum stofni til að ganga í gegnum þrengingar af því tagi sem greinin hefur mætt.