Pálmi Jónsson:
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. fyrirspyrjanda að það sé þörf á því að gerð verði heildarúttekt á stöðu þessarar greinar sem nú er í mjög alvarlegum erfiðleikum. Ég held að það sé óhætt að meta það nokkurs sem hæstv. ráðherra hefur lýst að gripið verði til til þess að verjast einhverjum af þeim áföllum sem sýnilega dynja yfir. En mér þykir sýnilegt að þar sé um ónógar aðgerðir að ræða.
Þær aðgerðir fela í sér eftir því sem ráðherra sagði að bættur verði með aðgerðum um einn þriðji þess verðfalls sem orðið hefur. Þá eru óbættir tveir þriðju hlutar verðfallsins og verðfallið er gífurlega mikið. Það er ekki nein lausn í því fólgin að framlengja lán og fresta afborgunum þegar fyrirtæki eru orðin gjaldþrota eða ramba á barmi gjaldþrots. Það er hægt að lengja í snörunni, en það er ekki lausn og þó svo að menn kannski bindi vonir við það að verð taki að stíga aftur og þó að hafa beri í huga að allar sveiflur í þessum málum eru hægar er það ekki nægilega að gert að fresta afborgunum og lengja lán þegar gjaldþrot er yfirvofandi. Það er aðeins til þess að lengja í snörunni. Menn þurfa að vita það, sem í þessari grein starfa, hvort raunverulegur möguleiki sé til að halda áfram eða ekki. Þess vegna þarf heildarúttekt að fara fram á stöðu greinarinnar og hvort það séu möguleikar til þess við þær aðstæður sem nú eru að halda áfram og hvað þurfi til að koma. Hjá því verður ekki komist.